Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 16
fjórar komi ekki með beinum hætti að
daglegum rekstri þá starfa þrír tengda-
synir þeirra hjóna hjá fyrirtækinu og
synirnir, Pétur Hafsteinn og Páll Jó-
hann eru í stöðum framkvæmdastjóra
og útgerðarstjóra. Nýja kynslóðin er
því að mestu tekin við en Páll hefur
gaman að því að stússast enn í kring-
um reksturinn þó áhyggjurnar séu
kannski ekki eins miklar og á árum
áður.
„Ég er eiginlega að hætta þessa dag-
ana að vinna enda kominn á þann
aldur. Mér finnst gott að fylgjast með
og taka þátt í löndun á bryggjunni og
því sem til fellur - þetta er svona mitt
„hobbý" líkt og sumir fara að stunda
golfið þegar þeir hætta að vinna!
Vísir hf. er fjölskyldufyrirtæki okkar
og sameining við önnur fyrirtæki hef-
ur aldrei verið ofarlega í mínum huga.
Menn hafa komið og reynt að gylla
mikið fyrir mér kosti þess að samein-
ast öðrum og búa til stærri einingu en
ég hef aldrei verið spenntur fyrir því."
- Hvað veldur því?
Páll hugsar sig um í andartak og
kemur síðan með hreinskilið svar: „Ég
vil ráða þar sem ég er."
...i. d
r Sj1 í| f
‘5* HiwpMnfit" P-S&r-d&m IUl 1 1 iEI - ... — J? •" * *5S
Sighvatur GK er stærstur báta Vísis hf.
Unnið að saltfiskvinnslu í húsakynnum
Vísis hf.
16 Æcm
Fallegum afla landað úr Vísisbátnum Hrugni.
Samstaðan mikilvægust
í fjölskyldufyrirtæki
Einkenni á Vísi hf. eru þessi miklu
fjölskyldubönd sem eru innan fyrir-
tækisins og Páll og Margét viðurkenna
að þrátt fyrir kostina þá hafi formið
hliðar sem þurfi að varast.
„Ég hef sagt mínu fólki að regla
númer eitt sé að í svona grónu fjöl-
skyldufyrirtæki þurfi að gæta þess að
ekki sé mikill launamunur á milli
þeirra fjölskyldumeðlima sem hjá því
starfa. Þetta held ég að sé mikilsverð-
asta atriðið en að mínu mati eru kost-
irnir í fjölskyldufyrirtæki mun fleiri en
gallarnir. Samstaðan innan fjölskyld-
unnar að leggja hönd á plóginn og
stefna með fyrirtækið að sama marki
er líka að sjálfsögðu algert skilyrði. Við
erum svo lánsöm að hafa þessa sam-
stöðu hjá börnunum og tengdabörn-
unum og af þeirri ástæðu er Vísir hf.
það sem fyrirtækið er í dag."
- Og hvernig finnst ykkur að vera
komin með fyrirtækið í þá stærð að
vera með rekstur á Djúpavogi, í
Grindavík og á Þingeyri?
„Þetta er svo sem ekki flókið í sjálfu
sér því við fórum inn á Djúpavog til
að setja upp vinnslu sent við gjör-
þekkjum. Þar erum við með saltfisk-
Fullur salur afdýrmœtum saltfiskafurðum
frá Vísi.
vinnslu á sama grunni og hér í
Grindavík og hún er í raun með líku
sniði og var þegar við byrjuðum með
Vísi árið 1965. Tæknin er að vísu allt
önnur og meiri en vinnsluaðferðirnar
þær sömu. Okkur dettur hins vegar
ekki í hug að láta það stíga okkur eitt-
hvað til höfuðs þó við bætum við okk-
ur tengdum vinnslum á Djúpavogi og
á Þingeyri. Fyrst og fremst verður fólk
að hafa gaman af því sem tekist er á
við hverju sinni og þannig vill til að
ég hef mest gaman af því að vasast í
fiskvinnslu eða á bryggjunni. Við
erum ekki í sjávarútveginum af ein-
hverri hugsjón heldur einfaldlega
vegna þess að við höfum gaman af
þessu. Lífið er saltfiskur," segir Páll H.
Pálsson, aðaleigendi Vísis hf. í Grinda-
vík.