Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 39

Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI tekna með árgjöldum frá fiskiskipaflot- anum. Aldurslagasjóður var síðan lagð- ur niður í árslok 1990 og runnu eignir hans til Hagræðingasjóðs sjávarútvegs- ins. í samkeppni við önnur tryggingafélög Árið 1970 fékk Samábyrgðin leyfi til að annast slysatryggingar sjómanna og ábyrgðartryggingar útgerðamanna, ásamt öðrum tryggingagreinum tengd- um sjávarútvegi. {samræmi við lög nr. 116/1993 sem tóku gildi um leið og ísland var aðili að samningi um Evrópska efnahags- svæðið var á árinu 1994 unnið að því að færa starfsemi Samábyrgðarinnar og bátaábyrgðarfélaganna að fullu til sam- ræmis við ákvæði hinna breyttu laga fyrir 1. janúar 1995. Veigamesta breyt- ingin var að afnumin var skylda eig- enda fiskiskipa minni en 100,49 rúm- lestir að vátryggja skip sín hjá báta- ábyrgðarfélagi starfandi á því svæði sem viðkomandi skip var skrásett á. Iðgjöldin lækka jafnt og þétt Pétur Sigurðsson segir að eðlilega hafi mikil þróun átt sér stað í starfi félags- ins á 90 árum. „í dag skiptast iðgjaldatekjur okkar að þriðja hluta í frumtryggingar og að tveimur þriðju hlutum í endurtrygg- ingar. Eftir að sú lagabreyting gekk í gildi árið 1995 að menn gætu tryggt skyldutryggðu bátana hjá hvaða vátryggingarfélagi sem er hafa iðgjöld lækkað um 3-10% árlega og það hefur ekki lítið að segja fyrir útgerðirnar. Þarna kemur tvennt til, annars vegar samkeppnin og hins vegar að sem bet- ur fer hafa tjón farið minnkandi. Hvað þann þátt varðar held ég að megi þakka betri höfnum og síðan ekki síður hinu að vegna kvótakerfisins er sóknin önnur en áður var og ekki sótt í jafn slæmum veðrum og áður," segir Pétur Sigurðsson, forstjóri Samábyrgðar íslands. Rf efnir til málþings í tengslum við íslensku sjávarúvegssýninguna í Kópavogi: Markaðsmál og meðferð afla /tengslum við Islensku sjavar- útvegssýninguna 1999 heldur Rf, ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, málþing er ber heitið „From catch to consumers" og er málþingið haldið í Tónlistarhúsinu í Kópavogi dagana 1. og 2. september. Málþinginu verður skipt í tvo hluta. Meðhöndlun fisks Fyrri daginn, 1. september, verður fjallað um meðhöndlun afla um borð í fiskiskipum. Þessi hluti mál- þingsins er haldinn á íslensku. Þar munu tveir sérfræðingar frá Rf, Sig- urjón Arason og Magnús Ólafsson, halda erindi. Auk þeirra mun Stella Marta Jónsdóttir halda erindi um vöruþróun í sjávarútvegi, en hún starfar hjá dönsku ráðgjafarfyrirtæki. Að lokum mun Kristján Jóakimsson, frá Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal, flytja erindi sem lýsir því hvernig góð meðhöndlun afla getur skilað fyrirtækjum samkeppnisforskoti og aukið framlegð. Meðhöndlun afla fyrstu klukku- stundirnar eftir veiði skiptir afar miklu máli og ræður úrslitum um endanleg gæði afurða. Rf hefur um nokkurt skeið boðið upp á námskeið sem ber heitið „Meðhöndlun um borð í fiskiskipum". Færst hefur í vöxt að fyrirtæki nýti sér umrætt námskeið og síðustu misserin hefur það orðið æ algengara að fyrirtæki kaupi námskeið beint inn í fyrir- Symposium-September 1999 tæki. Með því móti er hægt að taka mið af aðstæðum í hverju fyrirtæki fyrir sig auk þess sem þessi ieið er oft á tíðum ódýrari fyrir fyrirtækin. Markaöurinn fyrir sjávarafurðir skoðaður Seinni daginn verður fjallað um markaðsmál undir heitinu „Global trends on the marketplace for seafood". Þar munu þrír erlendir fyr- irlesarar halda fyrirlestra um þróun markaða, jafnt í Bandaríkjunum og Evrópu. Fyrirlesararnir koma frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Nor- egi. Af skiljanlegum ástæðum verður þessi hluti fluttur á ensku. Að auki mun Kristján Hjaltason, forstöðu- maður markaðsmála hjá SH, flytja erindi um sölustarfsemi SH á mis- munandi mörkuðum, um nauðsyn- legar áherslur útflutningsfyrirtækja í sölustarfi og um þróunina hjá fyrir- tækjum sem dreifa matvælum er- lendis. Hægt er að skrá þátttöku á mál- þingið í síma 562 0240 eða á Vefnum (http://cc.rfisk.is/reg.htm) ÆGm 39

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.