Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 9

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 9
FRÉTTIR Nýtt risavaxið sjávarútvegsfyrirtæki að líta dagsins Ijós i Vestmannaeyjum: Ræður yfir 13 fiskiskipum og 20.000 tonna aflaheimildum Tilkynnt hefiir verið um samrunafyrir- ætlanir stærstu hluthafa í Isfélagi Vest- mannaeyja hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum. A síðasta ári komu upp svipaðar hugmyndir og þá var ætl- unin að inni í sameiningunni yrðu einnig Krossanes hf. á Akureyri og Ósland á Höfn í Hornafirði en sú stóra sameining varð að engu. Æ síðan hafa verið raddir uppi um að af samruna stóru fyrirtækj- anna í Vestmannaeyjum yrði, engu að síður, og virðist svo sem lendingu hafi verið náð á bak við tjöldin í sameiningar- ferlinu. Hið nýja félag mun bera nafnið Isfélag Vestmannaeyja og miðast samruninn við 30. apríl 2000. „Það er markmið þeirra sem unnið hafa að undirbúningi samruna félaganna, að byggja upp í Vestmanna- eyjum öflugt og hagkvæmt sjávarútvegs- fyrirtæki til að nýta þau tækifæri sem bjóðast í framtíðinni," segir í tilkynn- ingu þeirri sem félögin tvö sendu frá sér nú x júlí en Ijóst er að stærð sameinaðs félags er mikil. Það hefur í aflaheimild- um um 20 þúsund þorskígildistonn og tekur rekstur þess til 13 fiskiskipa, þriggja fiskimjölsverksmiðja, öflugrar saltfiskvinnslu og bolfiskfrystingar, auk góðrar aðstöðu til verkunar á síld og humri. Nýr rekstrarstjóri Skagstrendings á Seyðisfirði Ómar Bogason hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Skagstrendings hf. á Seyðifirði. Ómar er fæddur þann 30. júní 1960 á Djúpavogi þar sem hann ólst upp. Hann lauk verslunarprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum árið 1978. Ómar gegndi ýmsum störfum hjá Búlandstindi hf. á árunum 1990- 1998, síðast starfi skrifstofustjóra. Ómar tekur við nýja starfinu þann 1. ágúst. Ægir í sumarleyfi Vegna sumarleyfa starfsmanna kemur tímaritió Ægir ekki út í ágústmánuði. Næsta blað, 9. tölublað ársins, veróur gefið út í september. Kæling og ísun á öllum fiski til sjós og lands! 0 Rækja / humar 0 0 Bolfiskur 0 (Kæling/ísun í lest) 0 Uppsjávarfiskur 0 3>þ Kæling í fiskeldi 0 NÝTT FLO Ís-OEL KÆLgKERFB VAR TEW í NOTKUN UM BORÐ í ARNARBORG í MARS S.L. TIL KÆLINGAR Á ÖLLU HRÁEFNB UM BORÐ “ískerfið frá STG ísve'him hefur reynst fullkomlega um borð hjá okkur frá fyrsta degi! T.d. við kœlingu á rcekju ímóttöku og eftir suðu. Afköst eru mikil og búnaðurinn tekur lítið pláss, er einfaldur í notkun og vinnuhagrœðing um borð hjá okkur er mjög mikil. Afköst í lausfrystingu og hráefnisgœði hafa einnig aukist verulega.” STG ísvélar / Fljótandi Ís-GEL kælikerfi til sjós og lands Fosshálsi 27, 110 Reykjavík Stmar 587 6005 / 896 1182 Fax 587 6004 stg@mmedia.is Flo Ís-GEL ísvélar eru fáanlegar i 9 mismunandi stœrðum og gerðum ! Fljótandi Ís-Gel

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.