Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 12
FRÉTTIR
Sá guli er vænn hjá
smábátakörlunum fyrir
vestan. Róbert Georgsson
heldur á gotþorski.
Hærra verð fyrir fiskinn
á Bretlandsmarkaði
- segir Óttar Már Ingvarsson á Flugöldunni SF-5
„Við þeysumst á milli hafna og lands-
horna eftir dyntum þorsksins. Síðustu
daga erum við búnir að vera hér á Suður-
eyri, en erum að gera okkur klára núna í
að fara austur á Þórshöfn enda hefur verið
góð veiði við Langanes að undanförnu,"
sagði Óttar M. Ingvarsson á Flugöldunni
SF-5, þegar tíðindamaður Ægis hitti
hann við höfnina á Suðureyri á dögunum.
Sem endranær er mikill fjöldi smábáta
gerður út í sumar frá Vestfjörðum, en svo
virðist sem smábátamenn rói víðar í
sumar en oft áður. Smábátakarlar hafa til
dæmis mikið verið að róa frá höfnum á
Norðurlandi eða þaðan sem styst er í góð
aflabrögð hverju sinni.
Óttar kom á Suðureyri um 20. júní og
reri þaðan í nálega þrjár vikur. Aflann
seldi hann m.a. á markað, en einnig beint
með gámaútflutningi á Bretlandsmarkað
og annaðist Fiskmarkaður Vestfjarða þá
sölu. „Verðin á innanlandsmörkuðunum
hafa verið lág í sumar, meðal annars
vegna þess að þorskurinn hefur verið
frekar smár. Meðalverðið hefur verið 105
til 110 krónur. Það hefur skilað okkur 10
til 15% hærra verði að selja fiskinn
slægðan beint á Bretlandsmarkað," segir
Óttar.
„Menn eru að þeytast þvert á milli
landshorna til þess að ná að vera þar sem
aflinn er hverju sinni. Fjöldi sóknardaga
er takmarkaður og því er mikilvægt að
nota hvern dag sem best og róa á sem
aflasælust mið, ef það getur skilað mönn-
um tonninu meira þann daginn. En auð-
vitað teljum vð það lítið að fá aðeins 23
sóknardaga á ári,“ segir Óttar.
Þeir róa eftir dyntum þorsksins. Pétur Þór Lárus-
son og Óttar Már Ingvarsson, til hægri, um borð
i FLugöldunni í höfninni á Suðureyri.