Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 25

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 25
21 eftirlátinna vandamanna, ekkju, barna, foreldra eða sjrstkina. »Sjeu engir slikir vandamenn til, eignast vátryggingarsjóður upphæðina, nema öðruvisi sje ákveðið í lögmætri erfðaskrá«, sbr. 5. gr. laganna. Stuðningur hins opinbera var fólginn í því, að landssjóður ábyrgðist vátrjrgginguna, þó ekki fram yfir 15000 kr., að landsstjórnin skyldi hafa yfirumsjón með válryggingnnni og skipa einn mann af þremur í stjórn hennar. Hinir tveir skyldu kosnir, annar af fjölmennasta útgerðarmannafjelagi landsins, hinn af fjölmennasta hásetafjelaginu. Af þessum útdrætti úr lögunum frá 1903, er það auðsjeð að hjer var aðeins um veikan vísi til trjrggingar að ræða. Hinir trjrggingarskyldu báru, eftir sem áður, sjálfir áhættuna að mestu leyti, algerlega er nm sljrsfarir var að ræða, er ekki leiddu til bana, og að miklu jafnvel þótt til tryggingar- innar tæki, þar sem bæturnar voru svo lillar. Enn fremur voru bæturnar ekki ákveðnar sem eiginlegar dánarbætur, því þær fjellu til eftirlátinna vandamanna eða brjeferfingja, án tillits til þess, hvort þeir voru á framfæri hins látna eða ekki. Hinsvegar voru iðgjöldin lítil. b. Lögin frá 1909. Með lögum nr. 53, 30. júlí 1909, um vátrygging fyrir sjó- menn, var trjrggingarskyldan aukin töluvert. Nú skyldi hún ná til hjerlendra sjómanna, er lögskráðir eru á islensk skip, hvort sem þeir stunda fiskiveiðar, eru í förum með fram ströndum landsins eða landa á milli. »Ennfremur er skylt að vátryggja líf hjerlendra sjómanna, er reka fiskiveiðar á vjelar- bátum eða róðrarbátum fjórrónum eða stærri, minst eina vertíð á ári«. Iðgjald sjómanna var hækkað upp í 18 aura fjrrir hverja viku, en úlgerðarmaður skyldi nú ekki greiða nema þriðjung á móts við gjald allra skipverjanna. Enn- fremur voru innheimtulaunin hækkuð upp í 4°/o fyrir gjald af vjel- og róðrarbátum og tekið fram að skuldheimtumenn gætu ekki helgað sjer dánarbæturnar. Að öðru leyli hjelst skipulagið óbreylt. Breytingin með lögunum frá 1909 var þá sú, að hækka iðgjöldin á sjómönnum, lækka þau á útgerðarmönnum og að gera tryggingarskylduna víðtækari, enda námu iðgjöldin fyrir árið 1910, fjrrsta árið sem lögin giltu, 13918 kr. 25 au. að frádregnum innheimtulaunum, og annað árið, 1911, kr. 25398,85, en fyrir 1917, kr. 21434,49. Fyrir 1909, síðasta árið

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.