Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Qupperneq 10
8
þær tvær ástæður, scm eg tel valda mestu háskólanum til
miska. Þær eru ekkert háfleygar eða skáldlegar, eins og vænta
má, því að eg er ekki skáld. En þær eru mjög raunhæfar og
liggja eins og' gapandi torfærur framundan, livenær sem litið
er fram á leið. Þær hindra einmitt livor sinn þáttinn i starfi
háskólans, því að önnur þeirra kemur sérstaklega við stúdent-
unum, en hin kennurunum. Er bezt að eg nefni þær strax, og
minnist svo dálítið nánar á þær hvora um sig á eftir. Þessi
tvö vandamál Háskólans og vandræða mál, eru:
1. Húsnæðisleysi Háskólans.
2. Óviðunandi launakjör háskólakennaranna.
Eg ætla þá fyrst að ljúka að tala um það, sem mér er ó-
geðfelldara, en það er launamálið. Það er vafalaust oft tekið
sem barlómur einber, en það nær engri átt. Hvort sem það
er barlómur af hendi kennaranna, sem kvarta, þá cr bitt víst,
að það cr stórmikið alvörumál fyrir Háskólann og fyrir þjóð-
ina, sem Háskólann kostar og Háskólans á að njóta.
Eg ætla ekki að fara bér að ræða um það, livort laun bá-
skólakennaranna sé nógu há. Eg ætla mér að vísa um það
efni í mörg álitsskjöl og skýrslur og þó einkum í rannsókn ])á
á launamálinu, sem Samband starfsmanna ríkisins lét fram-
kvæma fvrir tveim árum og birt er í Alþingislíðindunum. Og
eg ætla að visa i ástandið eins og það er. Það væri óbætt að
leiða alla háskólakennarana sem vitni og það myndi koma
sama svarið bjá öllum, að fyrir fjölskyldumann í þessari
stöðu væri ómögulegt að komast af með laun þau, sem nú
eru greidd, og það sem verst er, það vantar mikið á, að þau
brökkvi til.
Hvaða afleiðingar verða nú af þessu?
Starf háskólakennara er þannig í eðli sínu, að það er sér-
staklega óbeppilegt fvrir vinnuveitandann, ríkið, að launa þá
illa. Starfið blýtur sem sé að vera tvíþætt. Annar þátturinn er
kennslan sjálf, og liún er yfirleitt ekki tímafrek. En það er
vegna þcss, að binn þátturinn í starfi háskólakennaranna er
því timafrekari, ef vel á að vera ræktur, og það er vísinda-