Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 12
10
þeim er bezt treyst til þess, að vera starfsmenn við slíka mið-
stöð. En þetta hlntverk rækir Háskólinn aldrei fyr en kenn-
araliði hans ern gefnir sæmilegir starfsmöguleikar. Vísinda-
starf verður ekki rækt af þeim mönnum, sem visað er á úti-
gang sér til lífsbjargar. Háskólakennarar, með sæmilegum
kjöriun og möguleikum til þess að koma út góðum hókum,
eru svo verðmæt eign fyrir þjóðina, að það er liróplegt að
vita til þess, að lienni sé sóað eins gálauslega eins og nú er gert.
Þá kem eg' að hinu málinu, húsnæðisvandræðum Há-
skólans.
Þegar Háskólinn var settur liér í fyrsta sinn, var honum
holað niður liér í nokkrum stofum á neðri hæð Alþingishúss-
ins. Þetta var gert til þess, að húsnæðisskorturinn þyrfti ekki
að koma í veg fvrir það, að Háskólinn yrði stofnaður á 100
ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Það var ágætlega vel hugsað,
og ómögulegt að liann gæti fæðzt undir meiri heillastjörnu
en þeirri. Og' vinir lians liafa vafalaust gert sér von um, að
ef liann væri á annað horð til orðinn, myndi liann aldrei
verða lengi látinn ganga svo tötrum klæddur.
En nú er engin furða þó að einstaka menn fari að spyrja
varðmennina, livað nóttinni líði. Háskólinn er nú senn 20 ára
og enn er allt við það sama um húsrúm hans. Enn eru ís-
lenzkir stúdentar látnir húa við svo mikil ókjör i þessu efni
á námsárunum, að óhugsandi er annað en það dragi verulega
úr gagni því, sem þeir eiga að hafa af dvöl sinni hér. Kennslu-
stofur eru of fáar, of litlar og of dimmar. Vinnustofur vant-
ar með öllu. Bókasöfn deildanna komast ýmist illa eða alls
ekki fwir, svo að gagn verði að þeim. Þessir fróðleikshrunn-
ar eru því að miklu levti hyrgðir á móts við það, ef hókasöfn-
unum væri komið fvrir í vinnustofum stúdenta. Fyrirlestra-
salur er enginn. Og alll vantar, sem leitt getur lil stúdenta-
lífs, hæði úti við og inni við. Stúdentalífið á helzt að þrosk-
ast liér í einu anddyri með mögnuðum dragsúg þegar hvasst
er. Og ekki svo mikið, að stúdentarnir hafi þá þetta anddyri
handa sér einum. Nei, engin þægindi, ekkert fagurt fyrir aug-