Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 81
79
Teknologi (efnis- og áhaldafræði) fram í fyrri hluta námið, en hins-
vegar er í reglugerðum skólanna ákvæði um það, að ef nemanda
vantar eitthvað af aukafögum í fyrrihlutprófið, þá geti hann tekið
próf í því sérstaklega, og eins próf í þeim fögum, er meiri kröfur
eru gerðar til en hann hefir próf i áður. Þarf hann ekki að taka
upp allt fyrri hluta prófið þess vegna. Aðalgreinir síðari hluta
námsins eru venjulega þessar:
1. Byggingarverkfræði.
2. Vélaverkfræði.
3. Rafmagnsverkfræði.
4. Kemi- eða verksmiðjuverkfræði.
5. Námaverkfræði.
6. Húsgerðarlist.
Það eru aðeins sumir háskólanna, sem kenna allar þessar aðal-
greinar. í Danmörku er t. d. engin námafræði kennd sem aðalgrein
og húsgerðarlist er ekki kennd þar á verkfræðingaskólanum, heldur
í sérstökum skóla (Kunstakademiet).
Til eru skólar, sem ekki kenna nema eina þessara aðalgreina, t. d.
námaverkfræði, og jafnvel ekki nema hluta úr aðalgrein, svo sem
skipasmíðaverkfræði, sem annars er talin sérgrein vélaverkfræð-
innar.
En hvernig sem svo sem námið greinist, þá er undirbúnings-
námið 4 semestrin tnjög líkt, ef skólinn á annað borð hefir rétt-
indi til að veita háskólapróf i náminu.
Þar sem ekki getur verið um annað að ræða, að svo stöddu, hér
hjá okkur en að veita kennslu í hinu sameiginlega undirbúnings-
námi eða fyrri hluta verkfræðináms, skal sá hlutinn athugaður hér
nokkru nánar.
Það, sem sagt verður um námsgreinarnar og stundafjölda, styðst
við reglugerð danska háskólans og háskólans i Darmstadt, er ég
hefi séð, en þær eru mjög líkar.
Námsgreinarnar og námstíminn til fyrri hlutans eru þessi:
1. Stærðfræði 4—5 stundir á viku öll semestrin.
2. Mekanik um 3 stundir á viku í 3 semester.
3. Deskriptiv Geometri 3—4 stundir á viku í 3 semester.
4. Teikning um 18 stundir á viku i 2 semester og
— um 12 stundir á viku í 2 semester.
5. Eðlisfræði um 4 stundir á viku i 4 semester.
6. Eðlisfræðistilraunir 3 stundir á viku (1 dagur) i 1 semester.
7. Efnafræði um 4 stundir á viku í 2 semester.
8. Efnafræðitilraunir 3 stundir á viku (1 dagur) i 1 semester.
9. Jarðfræði um 4 stundir á viku i 2 semester.