Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 89

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 89
87 Fylgiskjal II. Bréf tveggja amerískra prófessora um sumarnámsskeið. Tjarnargata 22, Reykjavik. 10. ágúst 1930. Dr. G. J. Gislason, Grand Forks, N.-Dak. Kæri dr. Gíslason! Hugmynd yðar um það, að koma á fót sumarskóla við Háskóla íslands, þar sem útlendingum væri veitt fræðsla i islenzkum bók- menntum, sögu og menning, ætti að ræðast, fullkomnast og kom- ast í framkvæmd sem allra fyrst. í mörgum öðrum löndum Evrópu, einkum Þýzkalandi, og i Ame- ríku eru slíkir sumarskólar eða námsskeið fastur liður í starfskrá háskólanna. Með þessu færa þessir skólar sér í nyt þann augljósa sannleik, að námsfólk vill helzt geta varið sumarleyfi sínu til hvors- tveggja, náms og ferðalaga. En ef útlendur ferðamaður kemur til íslands að sumarlagi (og það er eini tíminn, sem hægt er að nota til ferðalaga á íslandi), kemur hann að háskólanum lokuðum og kennurum hans dreifðum út um hvippinn og hvappinn. Ef kostur væri á námsskeiði í sambandi við vel skipulagðar ferðir til merk- ustu staða, myndi það án efa draga marga erlenda fræðimenn til landsins. Ef ísland á að verða miðstöð norrænna fræða í framtíðinni, og það ætti það að verða sakir bókmennta sinna, tungu og sögu, verð- ur nú þegar að sjá svo um, að þeir, sem kynnast vilja íslenzkri menning og háttum, eigi sem allra greiðastan aðgang að þeim fróð- leik. Námskeiðum í þessum fræðum, og svo í nútíma íslenzku, ætti að koma af stað, og fá til þeirra beztu fræðimenn frá háskólum og menntaskólum i Evrópu og Ameríku. Tungan sjálf, sem geymt hefir mörg forn einkenni og felur í sér svo flókið kerfi hljóðfræði, er i sjálfri sér svo að segja einstök, og alveg nauðsynleg hverjum þeim, sem vill kynna sér samband ger- manskra mála. Eins og nú hagar til má búast við, að útlendingurinn komi til íslands án þess að kunna nokkuð i nýja málinu, haldi svo áfram að lesa sina þýzku eða ensku, dönsku, norsku eða sænsku, og fari lieim með það á tilfinningunni, að íslenzka nútimans sé ugglaust merkilegt tungumál, ef manni væri gefinn nokkur kostur að læra hana. Sumarskólinn ætti einmitt að gefa mönnum þetta tækifæri, og bæta þannig úr þessum örðugleikum, að nokkru leyti að minnsta kosti. Ef hugmynd yðar væri komin i framkvæmd, myndi sumardvöl á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.