Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 74
72
skólum og alþýðuskólum, þurfa að sækja slika náttúrufræðikennslu
við háskólann, til þess að geta talizt fullfærir til að kenna þessar
greinar, því að hingað til hefir undirbúningsnám þeirra undir slíkt
kennslustarf verið allt of ófullkomið.
Það er vafalaust, að háskólar á Norðurlöndum myndu taka gilt
þetta undirbúningsnám hér heima, eftir prófum eða vottorðum frá
háskólanum hér, ef hægt er að sýna fram á, að kennslan hafi farið
fram eftir föstu skipulagi. En auðvitað yrði að taka nokkurt tillit
til þess, hvaða erlenda háskóla nemendur ætla að sækja,- að byrj-
unarnáminu loknu.
í þýzkum háskólum mun mega spara þriggja semestra nám með
tveggja vetra undirbúningsnámi hér heima i þessum greinum.
Laugarnesi, 1931.
Guðm. G. Rárðarson.
P. S. Frá mag. sc. Árna Friðrikssyni hefi ég fengið ítarlegt álit um
byrjunarnám í grasafræði og dýrafræði, miðað við kennslu i Hafn-
arháskóla. Læt ég það fylgja þessari greinargerð.
G. G. Bárðarson.
Undirbúningsnám i dýrafræði og grasafræði við Háskóla íslands.
í tilefni af því, að Visindafélag íslands hefir skipað nefnd til
þess að athuga, að hve miklu leyti íslendingar geti stytt útivist
þeirra stúdenta, sem verða að sækja nám sitt til erlendra háskóla,
með undirbúningskennslu hér, hefir hr. próf. Guðm. Bárðarson,
sem er einn í nefndinni, snúið sér til mín með þessar spurningar
og beðið mig að svara þeim með umsögn á málinu:
1. Væri hægt að veita hér heima 1—2 ára undirbúingskennslu i
þessum greinum (jurtafræði og dýrafræði), svo að það sparaði
jafnlangt nám við háskóla erlendis?
2. Hvaða fög væri hægt að kenna hér?
3. Hvaða tæki mætti bjargast við við kennsluna, svo viðunanleg-
ur árangur fengist?
4. Hver mundi verða kostnaðurinn?
Mér finnst lítill vafi á því, að veita megi hér undirbúnings-
menntun i jurtafræði og dýrafræði, en vil mæla með því, að náms-
tíminn hér sér tvö ár, en ekki eitt. Við náttúrufræðinám standa
stærðfræðistúdentar mun betur að vigi en máladeildarmenn. Báð-
um þyrfti að kenna efnafræði scm undirbúningsfag, i líkum inæli-
kvarða og læknanemum, eða ef til vill lítið eitt meira (bæði kvanti-
tat og kvalitat æfingar). Ennfremur þyrfti að kenna máladeildar-
stúdentum eðlisfræði, í líku sniði og nú er kennt í stærðfræði-
deild Menntaskólans, en leggja sérstaka áherzlu á að útskýra og