Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 73
71
gosmyndir og einnig molaberg eða sediment, og stutt að fara til
annara staða, er ágæta fræðslu geta veitt í íslenzkri jarðfræði og
einnig í almennri jarðfræði. Er hér gnægð hentugra æfingaverkefna
handa nemendum, er þeir gætu æft sig á og unnið að undir leið-
sögn kennara.
Grasafræði: Hér yrði að sjálfsögðu aðaláherzlan lög á almenna
grasafræði (Morphologi, Fysiologi etc.). Til slíks náms þarf smá-
sjár, helzt eina handa hverjum nemanda við æfingar, og ýmislegt
af efniim, sem þarf til að búa til preparöt. Hnifa, nálir, tengur
leggja nemendur sér til sjálfir, og kostar það lítið, og þurfa þau
tæki eigi að vera fyrirferðarmeiri en svo, að þeir geti geymt þau
i vasa sinum. Auk þess þarf að vera völ á lifandi plöntum að vetr-
inum, bæði til æfinga og skýringa á ýmsu í kennslunni. Mætti sjá
fyrir þvi með dálitlum vermiskála. Ennfremur hentugar vegg-
myndir og skuggamyndavél etc. í Hamborg fara 40 fyrirlestratímar
og 40 verklegir æfingatímar til slíks byrjunarnáms i grasafræði.
Meira ætti ekki að þurfa hér.
Dijrafræði. í þeirri grein mundi verða lögð aðaláherzlan á al-
menna dýrafræði og samanburð hryggdýra og jafnvel hryggleys-
ingja. Ennfremur anatomiskar æfingar, og nemendur um leið æfðir
i að nota smásjár, til að athuga ýmsar vefjartegundir dýra, pre-
parera þau og teikna myndir af slíkum preparötum.
Aðaláhöldin til þessa náms eru smásjár og ýms smærri fylgi-
tæki þeirra, og ennfremur skálar og geymsluilát fyrir dýr, sem
notuð eru til æfinga. Við fyrirlestra þyrfti myndir, eitthvað af af-
steypum eða mótum og ef til vill lítilsháttar af útstoppuðum dýrum.
Mikroskopisk preparöt ættu nemendur mest að búa til sjálfir eftir
leiðsögn kennarans. Vér höfum hér í Reykjavík svo greiðan að-
gang að fjölbreyttu sædýralífi lil verklegra æfinga, að slík hlunn-
indi munu vera fágæt við háskóla erlendis. Og kostnaðarlítið er
að skreppa með nemendum á varðskipi, er fengist við rannsóknir,
til að kynnast dýralifi á meira dýpi og lengra frá landi.
Við háskólann í Hamborg eru ætlaðir ca. 80 timar til fyrirlestra
i dýrafræði og jafnmargir til æfinga fyrstu 3—4 semestrin.
Kostnaðaráætlun sleppi ég að gera að þessu sinni um kennsluna.
Eðlisfræði og efnafræði. Þessar greinar þurfa náttúrufræði-stú-
dentar að taka sem ^byrjunarnám. Félli sú kennsla að sjálfsögðu
saman við kennslu lækna og verkfræðinga í þessum greinum að
meiru eða minna leyti, og engin aukaáhöld myndi þurfa vegna
nemenda í þessum greinum. I háskólanum í Hamborg fara ca. 100
timar til kennslu í hvorri greininni fyrir sig fyrstu semestrin.
Að minni ætlan myndu þeir, sem náttúrufræði kenna i barna-