Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Page 13

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Page 13
11 að, ekkert sem vekur þá tilfinning stúdentanna, að þeir sé borgarar í ákveðinni stofnun, með þvi að draga þá hvern að öðrum og frá öllu öðru. Menn geta vafalaust lært mikið og liaft mikið gagn af háskólavistinni, þó að svona sé ástatt um liúsnæði háskólans. En ef það gerir ekkert til, livers vegna í ósköpunum keppast menn þá við að gera háskólahús sín sem bezt úr garði og hafa þar allt sem vistlegast innan liúss og utan? Hér liggur, að minni hyggju, annað aðalmein háskólans. Eg hef ekki trú á reglugerðarbreytingum, skipting prófa og upptekt nýrra kennsluaðferða til þess að bæta þetta upp. Auð- vitað er sjálfsagt að fylgjast vel með í öllu þess háttar og halda þvi sem gott er. En þegar eitthvað verulegt er að, hef eg ekki trú á smáskammtalækningum og nuddi. Það þarf að gripa djarflega á meininu sjálfu, og það er liúsnæðismálið. Það á ekki að prédika móral fyrir banhungruðum manni, lieldur gefa bonum að eta. Það á ekki að prédika reg'lu- gerðarbreytingar og annað þess báttar f\TÍr liúsnæðislausum haskóla, heldur gefa honum þak yfir höfuðið. Það er grund- vollur allra þeirra vinnuvísinda, sem ég þekki, að búa vel í hendurnar á sér. Það eru engin vinnuvísindi, já ég vil segja, það er engin hemja, hvernig búið er í hendurnar á þeim ís- lenzkum námsmönnum, sem verja dýrmætasta parti æfi sinn- ar í það, að gera sig hæfa fyrir starf í þjónustu þess opinbera. Mér þykir því sérstaklega vænt um að geta skýrt frá því, að hreyfing virðist vera að lcomast á þetta mál. Að vísu ákaf- lega lítil hreyfing og helzt til liátt fyrir ofan jörðina fram að þessu, en þó breyí'ing, þó lífsvottur. Háskólaráðið lireyfði mál- inu haustið 1928, og núverandi kennslumálaráðherra hef- ir lieyrt þetta kvak og sett málið á stað. Hann ritar háskóla- ráðinu bréf, dags. 8. jan. 1929. Telur hann tíma til þess kominn, að fara að liefja undirbúning. Háskólaráðið lét ekki segja sér það tvisvar. Það sneri sér til bæjarstjórnar um lóð undir væntanlegt háskólahús og til deildanna um tillögur. Frá bæjarstjórn kom ekkert svar. En 7. marz bókar fast- eignanefnd bæjarins: „Nefndin telur rétt, að Háskólanum sé

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.