Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 62

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 62
60 manni hans, þar sem því tókst að fá Pétur Sigurðsson háskóla- ritara til þessa starfs. Hygg ég að þar með sé Upplýsingaskrifstof- unni horgið um ófyrirsjáanlegan tíma, og að hún undir forsjá hans eigi eftir að gera mikið gagn. Skrifstofan hefir átt við ýmsa örðugleika að striða, sérstaklega hvað húsnæði snertir, en Stú- dentaráðinu hefir tekizt að ráða hug á þeim, og má þar sérstaklega þakka Háskólaráðinu fyrir mikla og góða aðstoð. Hefir það veitt leyfi sitt til þess að geyma bókasafn skrifstofunnar í lesstofu Há- skólans. Urðu hinar frönsku bækur Lesstofu stúdenta að rýma og fékk Landsbókasafnið þær að gjöf. — Ég held ekki, að menn þurfi að sjá eftir þeirri gjöf, því bæði voru bækur þessar litið lesnar, og svo geta menn gengið að þeim á Landsbókasafninu, hvenær sem þeir vilja. Nokkrar bækur trúarlegs eðlis fékk guðfræðideildin. I'.r nú safn Upplýsingaskrifstofunnar komið í bezta lag, og geta menn þvi leitað ótrauðir til forstöðumanns hennar, til þess að fá upp- lýsingar um nám við erlenda háskóla o. s. frv. Fjárhagur Upplýsingaskrifstofunnar var orðinn mjög þröngur, svo að jafnvel kom til mála að leggja liana niður af þeirri ástæðu. Stúdentaráðið leitaði þá til Háskólaráðs og fékk hjá þvi 500 króna styrk. En fjármálum stofunnar var ekki komið í lag, þótt þessi styrkur fengist. Rikisstjórnin hafði fellt niður styrk þann er Upplýsingaskrifstofan hefir fengið á fjárlögum tveggja undanfar- andi ára, svo að ekki var gott í efni. Stúdentaráðið leitaði til þings- ins í sumar um samskonar styrk og áður, og fór sú málaleitan þánnig, að þingið veitti 1200 krónur. Með þessu er þá fjárhag Upp- lýsingaskrifstofunnar vel borgið. Um störf Upplýsingaskrifsofunn- ar þarf ekkí að rita langt mál. Þau hafa verið hin sömu og undan- farin ár: — Skrifstofan hefir eignazt allgott handhókasafn og mun kosta kapps um að gera það sem fullkomnast, nú þegar fé er fyrir hendi til bókakaupa. Stúdentagarður. Sjö manna nefnd stjórnar málefnum Stúdentagarðsins, og sitja nú í henni þessir menn: Björn Þórðarson lögmaður, Gunnlaugur Einarsson, læknir, Pálmi Hannesson rektor, Pétur Jakobsson stud. med., Pétur Sigurðsson háskólaritari, Ragnar Jónsson stud. jur. og Tómas Jónsson, cand. jur. Formaður er Pétur Sigurðsson og gjald- keri Tómas Jónsson. í málefnum Stúdentagarðsins hefir fátt skeð þetta starfstímabil, því eins og málinu horfir nú við er litið hægt að gera. Flestir eru orðnir fráhverfir því, að reisa Stúdentagarðinn i Skólavörðuholtinu; má óefað telja það rétta stefnu, að hugsa ekki frekar um þann stað.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.