Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 85

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 85
83 Það, sem hér þarf að gera, er þvf að fá víðurkenningu þeirra háskóla, sem við óskum eða þurfum, fyrir þvi, að þeir taki fyrri hluta prófið okkar i verkfræði fullgilt. Til þess að fá viðurkenn- inguna þarf ekki annað en að sannfæra þessa háskóla um, að til þessa prófs sé heimtaður sami tími og gerðar að minnsta kosti eins miklar kröfur til námsins eins og þeir gera sjálfir. Er þá í því sam- bandi ekki aðeins um kröfur til prófsins að ræða, heldur og um ekki lakari tilhögun á kennslunni, sem væntanlega mætti heldur ekki vera mikið frábrugðin tilhögun þeirra sjálfra. Verður þá spurningin, hvort unnt sé að koma á líkri kennslu- tilhögun hér og höfð er við aðra skóla. Þegar iitið er á námsgreinarnar og stundafjöldann, sem talinn er hér að framan, er sýnilegt, að stærðfræði, mekanik og deskriptiv geometria, er samtals útheimta um 10 stundir á viku til jafnaðar i 4 semester, heyra saman. Að kenna þessi fög er það mikið verk, einkum ef stærðfræði-, eðlisfræði- og náttúrufræðinemendur yrðu einnig með, að það mætti ætla hæfilegt einum manni með embættis- prófi i stærðfræði að gefa sig eingöngu við þvi. A þá og að fást fullur árangur af þeirri kennslu og kostnaður ekki meiri en ef kennslunni væri skipt niður á fleiri, er hafa hana í hjáverkum. Hin kennslan er eðlisfræðikennslan í 4 stundir á viku í 4 sem- ester og efnafræðikennslan i 4 stundir á viku í 2 semester, eða 2 st. á viku til jafnaðar ailan tímann. Efnafræðikennsluna er auðvelt, eins og áður er sagt, að sameina núverandi efnafræðikennslu lækna- deildarinnar án tilfinnanlegs aukakostnaðar. Mætti tengja þessa kennslu að nafninu til betur við háskólann með því að búa til kennarastól í efnafræði, og væri forstöðumaður efnarannsóknastofu ríkisins fyrst um sinn kennari, eins og verið hefir, og hefði föst laun, greidd hlutfallslega úr hvorum staðnum. Sömu tilhögun mætti hafa á eðlisfræðikennslunni. Teiknikennsluna mætti ieggja undir stærðfræðikennarann, og hefði hann aðstoðarmann til að hafa daglega umsjón með henni, eins og tíðkast við erlendu skólana. Jarðfræðin yrði kennd sem aukafag og lögð undir eðlisfræði- kennarann, nema séstakur kennarstóll yrði í náttúrufræði. Kostnaðurinn við að hafa fastakennara við háskólann ætti ekki að vera meiri en ef öll kennslan yrði greidd í tímakaupi. Þótt kennar- arnir hafi önnur föst störf með höndum, rýrir það ekki kennsluna. Er þetta fyrirkomulag algengt erlendis í ýmsum sérgreinum. Með því að hafa þannig fastakennara í stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði og gera að minnsta kosti eins strangar kröfur til náms- ins og prófsins eins og erlendir skólar gera, er ekki sjáanleg nein

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.