Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 14
12
hlaut doktorsnafnbót fyrir bók sína „Bólstaðir og búendur í
Stokkseyrarhreppi", og mag. art Halldór Halldórsson dósent,
er hlaut doktorsnafnbót fyrir bók sína „Islenzk orðtök". 1
læknadeild hlaut Bjami Jónsson læknir nafnbót fyrir ritgerð
sína „Studies on Hibb’s Spine Fusion in the Treatment of
Scoliosis".
Ég áma þessum nýju doktorum allra heilla í nafni háskól-
ans. Ég gat þess áður, að guðfræðideild hefði kjörið herra Ás-
mund Guðmundsson biskup, fyrrum prófessor, heiðursdoktor
í guðfræði. Nú mun forseti heimspekideildar, prófessor Einar
Ólafur Sveinsson, fyrir deildarinnar hönd lýsa doktorskjöri, en
heimspekideild hefir sæmt mag. scient. Áma Friðriksson nafn-
bótinni dr. phil. honoris causa.
Þá lýsti forseti heimspekideildar yfir doktorskjöri mag. scient.
Áma Frtörikssonar.
Að því búnu mælti rektor:
Ég vil að lokum snúa máli mínu til yngstu stúdentanna, þeirra
sem nú í haust hafa skráðir verið til náms hér í háskólanum.
Þið hafið í sumar, síðan prófi lauk, verið stödd á krossgötum,
átt úr þeim mikla vanda að ráða, hvem veg þið ættuð að velja.
Nú er sú þrautin unnin, í bráð a. m. k., og vonandi hafið þið öll
hitt á rétta eða a. m. k. færa leið. Nú eigið þið fyrir höndum
nóg viðfangsefni, er þið hafið valið ykkur. Og framundan bíður
ykkar takmark, ekki nýjar krossgötur, eins og við stúdents-
prófið. Og takmarkið er að ná svo föstum tökum á höfuðnáms-
efninu, sérfræðinni, hver sem hún er, að þið getið að námi
loknu orðið fullkomlega liðtæk, góðir og gildir starfsmenn í
þjóðfélagi voru, hvert í sinni grein. Er það mín fyrsta ósk ykkur
til handa, að ykkur auðnist að ná því takmarki með sæmd.
Þegar nýjum stúdentum er fagnað í upphafi háskólaársins,
er ekki úr vegi að minnast ögn á það, sem kallað hefir verið
akademiskt frelsi. Hugtakið er í meira lagi óskýrt. Sumir virð-
ast halda, að það sé í því fólgið, að stúdentar þurfi hvorki að
fylgjast reglulega með í kennslustundum né lesa um námsefnið