Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 102
100
Ég var samkennari Jóns Hj. Sigurðssonar um áratugi og sam-
starfsmaður í Landspítalanum, og féll alltaf hið bezta á með
okkur, svo að aldrei hljóp snurða á, en um kennslu hans þykir
mér vel hlýða að taka upp ummæli eins nemanda hans frá
árunum áður en Landspítalinn tók til starfa og aðstoðarlæknis
í spítalanum seinna, dr. med. Sigurðar Sigurðssonar, sem ég
get fyllilega tekið undir: „. . . Kennsla hans var nákvæm og lif-
andi. Hann kunni vel þá list að gera glögg skil aðal- og auka-
atriða. Hann var samvizkusamur kennari, svo að af bar, og
gerði mér vitanlega aldrei upp á milli nemenda sinna. Hann
hafði sérstaklega gott lag á því að draga fram í kennslu sinni
og leggja áherzlu á einföld, en hagnýt atriði, er hverjum nem-
anda mætti að gagni koma síðar í lífinu. Hygg ég, að reynsla
hans sem héraðslæknis um nokkurra ára bil í einu víðáttu-
mesta og þéttbýlasta sveitahéraði landsins hafi mótað kennslu
hans og auðveldað honum að meta, hvernig haga bæri kennsl-
unni við þær aðstæður, er voru fyrir hendi. Hann lauk venju-
lega að fara yfir alla lyflæknisfræðina á 2%—3 vetrum. Hin
klíniska kennsla hans mum flestum nemendum ógleymanleg.
Mikil þekking hans í kennslugrein sinni, samfara óvenjulegri
athyglisgáfu og glöggri og skilmerkilegri framsetningarlist, ein-
kenndi þessar kennslustundir og gerði þær bæði eftirsóknar-
verðar og eftirminnilegar. Greining sjúkdóma var hans sterka
hlið“. (Læknablaðið 1.—2. tbl. 1956).
Við Landspítalann starfaði Jón Hj. Sigurðsson fram til hausts-
ins 1948, að hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. Auk kennsl-
unnar og starfsins í landspítalanum var hann líka læknir far-
sóttahússins í Reykjavík, og því starfi hélt hann áfram meðan
heilsa og kraftar leyfðu.
Jón Hj. Sigurðsson lét sér alltaf mjög annt um allt, sem að
Háskóla Islands laut. Árið 1942 var hann kosinn rektor há-
skólans til þriggja ára, og kom þá bezt fram áhugi hans á stjóm
skólans, sem hann lagði í mikla vinnu.
Maður, sem er hlaðinn jafn miklum og erilsömum störfum
og komu í hlut Jóns Hj. Sigurðssonar, hefur ekki mikinn tíma
aflögum til vísindastarfa. Um ritstörf hans má vísa til ritskrár