Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Síða 19
17
Embætti og kennarar.
Hinn 1. okt. 1954 var cand. theol. Þárir Kr. Þórðarson skip-
aður dósent í guðfræðisdeild.
Próf. dr. Ólafur Lárusson varð sjötugur 25. febr. 1955. Var
embætti hans auglýst laust til umsóknar 17. marz með um-
sóknarfresti til 1. maí. Umsækjendur voru þessir: Benedikt
Sigurjónsson fulltrúi, dr. Hafþór Guðmundsson og Magnús Þ.
Torfason fulltrúi. 1 nefnd samkv. 9. gr. háskólareglugerðarinnar
voru: Próf. Ólafur Jóhannesson, tilnefndur af laga- og hagfræði-
deild, formaður nefndarinnar, próf. Theódór B. Líndál, tilnefnd-
ur af háskólaráði, og Lárus Jóhannesson hrl. af hálfu mennta-
málaráðuneytisins. — Hinn 7. júlí 1955 var Magnús Þ. Torfa-
son skipaður prófessor í lögfræði frá 8. sama mán. að telja,
en próf. dr. ólafi Lárussyni veitt lausn frá embætti frá sama
tíma að telja.
Próf. dr. Jóhanni Scemundssyni var veitt leyfi frá kennslu
haustmisserið sökum veikinda, en síðar var leyfið framlengt
til loka vormisseris. Hann andaðist 6. júní 1955 (sjá bls. 91).
Prófessorsembættið í lyflækningum var auglýst til umsóknar
7. júlí 1955 með umsóknarfresti til 1. september. Ein umsókn
barst um embættið, frá dr. med. Sigurði Samúélssyni. 1 nefnd
samkv. 9. gr. háskólareglugerðarinnar voru dr. med. Hélgi
Tómasson yfirlæknir, formaður nefndarinnar, kosinn af lækna-
deild, próf. dr. Júlíus Sigurjónsson af háifu háskólaráðs og dr.
med. Sigurður Sigurðsson yfirlæknir tilnefndur af menntamála-
ráðuneytinu.
Prófessor Ármann Snœvarr hafði leyfi frá kennslu allt skóla-
árið. Kennslu hans önnuðust dr. jur. Þórður Eyjólfsson hæsta-
réttardómari og Vilhjálmur Jónsson héraðsdómslögmaður.
Prófessor dr. Leifur Ásgeirsson hafði leyfi frá kennslu allt
skólaárið. 1 hans stað kenndi Bjami Jónsson, prófessor við
Brown University í Providence, R. I.
3