Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 68
66
a. C var ekki tilkynnt framsalið. A heimti kröfuna hjá C næsta
dag eftir að framsalið hafði átt sér stað, og greiddi C honum féð.
Einum degi síðar krafði B C um kröfuna og sýndi skilríki fyrir
framsali til sín frá A. C neitaði að greiða peningana með skírskotun
til þess, að hann hefði þegar greitt kröfuna. C gekkst við því á dóm-
þingi, að „sig hefði grunað, að A hefði framselt kröfu þessa“. Ekki
fékkst gleggri skýrsla um þetta atriði.
b. A hafði framselt X kröfu þessa á hendur C einum mánuði áður
en framsalið til B átti sér stað. X tilkynnti C þegar í stað fram-
salið og sýndi skilríki fyrir rétti sínum. Er B gekk eftir kröfunni
hjá C, neitaði hann að greiða féð og vísaði til tilkynningar X, enda
greiddi C X kröfuna næsta dag.
B varð skapþungt út af viðburðum þessum. Hitti B A í kirkju
nokkrum dögum síðar. Er þeir gengu út úr kirkjunni, meðan út-
gönguvers var leikið, kallaði B A svikahrapp svo hátt, að margir
kirkjugesta heyrðu orðið.
Þeir A, B og C eru 22 ára að aldri og hafa ekki sætt refsingum.
Er unnt að koma fram viðurlögum á hendur þeim eftir málavöxt-
um?
III. 1 réttarfari: Gerið grein fyrir réttarverkunum dóma.
IV. Raurihæft verkefni:
Hinn 10. ágúst s. 1. pantaði Jón Jónsson kaupmaður 50 poka af
hveiti hjá heildverzluninni X h.f. hér í bæ. Jafnframt bað hann um,
að hveitið yrði sent sér með strandferðaskipinu Herðubreið cif. til
X-kaupstaðar og mundi hann greiða andvirðið gegn afhendingu farm-
skírteinis í útibúi Y-banka þar.
Herðubreið kom með hveitið á tilskildum tíma, síðara hluta laugar-
dags, og var það flutt í geymsluhús afgreiðslumanns, Áma Áma-
sonar, ásamt öðram vöram, er þangað áttu að fara.
Vegna þess hve áliðið var dags, gat Jón ekki fengið farmskír-
teinið fyrr en eftir helgina.
Um kvöldið var mjög gestkvæmt í X-kaupstað. M. a. lágu all-
mörg fiskiskip í höfn. Margir skipverjar vora í landi, og meðal
þeirra Gísli Gíslason og Eiríkur Eiríksson, skipverjar á v/b Úlfi.
Þeir voru nokkuð við öl á dansskemmtun og höfðu eytt öllu fé sínu.
Datt þeim þá í hug að brjótast einhvers staðar inn, og varð verzl-
unar- og vörageymsluhús Áma fyrir valinu. Bratu þeir félagar
glugga og skriðu inn um hann. í öðram enda hússins hafði Ámi
verzlun sína og skrifstofu. í skrifstofunni var peningaskápur, og
tókst þeim félögum að komast inn í hann. Þar náðu þeir í 3000 kr.