Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 94
92
lausu. Hann átti sæti í manneldisráði og læknaráði frá stofnun
þeirra 1939 og 1942, var í stjórn Rauða Kross Islands frá 1942
og er einn af hvatamönnum að stofnun Félags fatlaðra og lam-
aðra 1952. 1 stjórn útgáfunefndar menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu (M. F. A.) frá 1943 og í ritstjóm Læknablaðsins
1937—1941. Hann var sæmdur riddarakrossi Kungl. Nordstjárne-
orden 1942.
Jóhann kvæntist 1933 Sigríði Árnadóttur Thorsteinsson tón-
skálds, sem lifir mann sinn ásamt tveim dætrum þeirra, Helgu,
stúdent, og Gyðu, sem er enn í bernsku. Hjónaband þeirra var
ástríkt og farsælt. Jóhann var ástsæll af dætrum sínum og unni
þeim mjög. Heimili þeirra hjóna í Tjarnargötu 44 var búið af
mikilli smekkvísi, en heimilisbragur mótaðist af þeirri háttprýði
og hjartahlýju, sem þeim báðum var svo eiginlegur.
Námsmaður var Jóhann ágætur, flugnæmur, minnugur og
jafnvígur á flestar greinir. Hann lauk læknisnámi á styttri tíma
en venja var til, enda þótt hann hlyti að sinna ýmsum öðrum
störfum á vetrum jafnhliða námi.
Hann var málamaður mikill, sem sjá má af því, að hann þýddi
Nervous Breakdown af ensku á dönsku og samdi sjálfur doktors-
rit sitt á ensku. Honum virtist jafn lagið að semja greinar í vís-
indarit og setja saman fræðirit fyrir almenning, enda var hann
málhagur og ritaði óvenju skýrt og tilgerðarlaust.
Jóhann var maður hugkvæmur og átti mörg hugðarefni, sem
hann vann að af áhuga og atorku meðan tími og kraftar entust.
Hann flutti mál sitt jafnan með lægni og hófsemi, reyndi í lengstu
lög að forðast árekstra, eigi af því að hann væri deigur til áræðis,
enda bitu honum vel vopn, heldur af hinu, að hann komst lengra
með vinsamlegum fortölum og hófsamri ýtni en miklum hávaða
og hörðum sviptingum. Þætti honum mikið við liggja, barðist
hann ótrauður fyrir máli sínu og flutti það af því meiri festu
og sannfæringarkrafti sem honum var meira í hug. Hann var
drengilegur andstæðingur, en lét ógjarnan hlut sinn við hvern
sem var að etja.
Jóhann var ágætur félagi, Ijúfur og prúður, glaðvær og gaman-
samur, margsvinnur og fjölfróður, sagði flestum betur frá, en