Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Page 96
94
tryggingum og stuðla að víðtækari lagasetningu um heilsugæzlu
en svo, að þau lög hafi enn komið til framkvæmda.
Á stúdentsárunum kenndi Jóhann magasárs og ágerðist þessi
sjúkdómur á fyrstu læknisárum hans. Árið 1938 var hann skor-
inn upp við þessum sjúkdómi og var við allgóða heilsu um
nokkur ár, en fær síðar þarmablæðingar og þarf hvað eftir
annað að gera á honum holskurði, og er oft tvísýnt um líf hans.
Stendur heilsa hans mjög höllum fæti hin síðari árin, og um
haustið 1954 kemur í ljós, að hann er haldinn ólæknandi sjúk-
dómi. Sjálfum var honum þá fyllilega Ijóst, að hann myndi ekki
eiga langt líf fyrir höndum, og tók hann því með sömu still-
ingu og samskonar vitneskju um sjúklinga sína. Hann leitaði
erlendis staðfestingar á þeim rannsóknum, sem máli skiptu, og
síðan þeirrar lækningar, er fresta mætti þeim forlögum, sem
ekki urðu flúin. Hann var þá oft sárþjáður, en hélt frábærri still-
ingu og öðru andlegu atgervi óskertu til síðasta dags og fylgdist
með sjúkdómseinkennum á sjálfum sér af sömu gerhygli og
hugarró og honum var töm í læknisstarfi.
Jóhann var mikill starfsmaður, fljótvirkur og ósérhlífinn og
átti oft langan starfsdag, þrátt fyrir langvinn og þreytandi veik-
indi. Það er aðdáunarvert, hve miklu hann fékk áorkað, einkum
þegar þess er gætt, að hann fellur rétt fimmtugur og hefur þá
ekki verið með fullum starfskröftum síðustu árin.
Kristinn Stefánsson.
Yfirlit um rit Jóhanns Sæmundssonar prófessors fram til 1951 er
að finna á bls. 13—15 í Skrá um rit háskólakennara 1947—1951,
Reykjavík 1952.
Síðari ritgerðir:
Ehler-Danlos Syndrom. Acta Medica Scandinavica.
Dysplasia Fibrosa Ossium. Acta Psychiatrica et Neurologica Scandi-
navica. Vol. XXX Fasc 1—2,1955.
Um mænusótt. Sérprentun úr Samtíð og sögu 5. bindi, 1951.
Orsakir örorku á íslandi. Úr Árbók Tryggingastofnunar ríkisins.
Ritgerðin saman 1946, en gefin út sérprentuð 1952.
Sjálfstæði íslands á atomöld. Ræða flutt 1. desember 1953, gefin
út að tilhlutan Stúdentaráðs Háskóla íslands 1953.