Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Page 127
125
stúdentsins eða eitthvert heimsmál og úr því máli á íslenzku, 3.
bókmenntasaga.
Munnleg próf: 1. málfræði, 2. bókmenntasaga, 3. textaskýr-
ingar.
Fyrir hvert próf skal gefin sérstök einkunn. Til þess að stand-
ast prófið þarf stúdentinn að hafa hlotið, auk tilskilinnar meðal-
talseinkunnar (sbr. 45. gr.), hið lægsta einkunnina 5 í þýð-
ingum.
Nánari reglur um námsefni setja kennaramir í íslenzkum fræð-
um.
Skipulagsskrá fyrir
„Verðlaunasjóð Alfreds Benzons“.
1. gr.
Sjóðurinn heitir „Verðlaunasjóður Alfreds Benzons“ og er stofnaður
17. janúar 1955 á aldarafmæli Alfreds Benzons lyfsala og verksmiðju-
eiganda í Kaupmannahöfn.
2. gr.
Sjóðurinn er eign Háskóla íslands.
3. gr.
Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða. Skal ávaxta hann með því að
kaupa fyrir hann bankavaxtabréf, bréf gefin út eða tryggð af ríkis-
sjóði eða á annan jafn öruggan hátt að dómi háskólaráðs.
4. gr.
Reikninga sjóðsins skal endurskoða með sama hætti og reikninga
annarra sjóða háskólans og birta á hverju ári í Árbók háskólans.
5. gr.
Af vöxtum sjóðsins skal jafnan leggja þriðjung við höfuðstól, en
tveim þriðju vaxtanna má úthluta á hverju ári. Verði minni upphæð
úthlutað eitthvert ár, leggst afgangur vaxtanna við höfuðstól.
Af úthlutunarfénu má veita norrænum mönnum og konum verð-
laun fyrir rannsóknir í lyfjafræði og lyflæknisfræði og fyrir ritgerðir
um þau efni, byggðar á sjálfstæðum rannsóknum. Úthlutunamefnd
getur einnig tekið til sérstakt verkefni til rannsóknar og veitt verð-
laun fyrir bezta úrlausn. Enn fremur má veita styrk til framhalds-
náms í áðurtöldum greinum.
Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram 17. janúar ár hvert.