Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Page 128
126
6. gr.
Sérstök nefnd ákveður f járveitingar úr sjóðnum, og eiga sæti í henni
lyfsalinn í Reykjavíkur Apóteki, formaður nefndarinnar, kennarinn
í lyflæknisfræði í læknadeild, forstöðumaður Lyffræðingaskóla ís-
lands, þangað til sá skóli verður væntanlega lagður undir háskólann,
en síðar forstöðumaður (kennari) þeirrar deildar, kennarinn í lyfja-
fræði í læknadeild, læknir tilnefndur af Læknafélagi íslands, lyfsali
tilnefndur af stéttarfélagi lyfsala og lyfjafræðingur tilnefndur af
Lyffræðingafélagi íslands. Meðan nefndarmenn eru aðeins 6, skal for-
maður hafa úrslitaatkvæði, ef atkvæði eru jöfn. Kjörtímabil þeirra
þriggja nefndarmanna, sem tilnefndir eru, skal vera 3 ár. Af þeim,
sem eru tilnefndir í upphafi, skal einn ganga úr eftir 1 ár og annar
eftir 2 ár, samkvæmt hlutkesti.
Leita skal staðfestingar forseta íslands á skipulagsskrá þessari og
birta hana í Árbók háskólans.
(Staðfest af forseta íslands 8. sept. 1954).
Yfirlit yfir störf stúdentaráðs 1954—1955.
Tveir fyrstu kaflamir og síðasti kaflinn úr skýrslu formanns stúdenta-
ráðs, Skúla Benediktssonar. (Sjá að öðru leyti Vettvang stúdentaráðs,
október 1955).
Skipan ráðsins og fundir.
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla íslands fóru fram laugardag-
inn 30. október 1954. Á kjörskrá voru 835 stúdentar, en atkvæði
greiddu 623 eða 74,6%.
Fram komu f jórir listar og urðu úrslit sem hér segir:
A-listi, listi Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýð-
ræðissinnaðra sósíalista, hlaut 119 atkvæði og 2 menn kjöma, þá
Skúla Benediktsson, stud. theol. og Vilhjálm Þórhallsson, stud. jur.
B-listi, listi Þjóðvamarfélags stúdenta, hlaut 80 atkv. og einn mann
kjörinn, Bjöm Ólafsson, stud. polyt.
C-listi, listi Félags róttækra stúdenta, hlaut 125 atkv. og 2 menn
kjöma, þá Jón Böðvarsson, stud. mag., og Áma Bjömsson, stud.
mag.
D-listi, listi „Vöku“, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, hlaut 283
atkv. og 4 menn kjöma, þá Sverri Hermannsson, stud. oecon., Jónas
Hallgrímsson, stud. med., Ragnheiði Helgadóttur, stud. jur., og Ing-
ólf Guðmundsson, stud. theol.
Á fyrsta fundi hins nýkjöma Stúdentaráðs, sem haldinn var þriðju-