Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 137
135
hefur verið hinn sami, 10 þúsund krónur, í fjöldamörg ár. Óskaði
S. H. í. að styrkurinn yrði hækkaður um 15.000 kr. Ennfremur var
fjármálaráðherra og menntamálaráðherra skrifað og þeir beðnir að
veita málaleitun þessari stuðning sinn.
StúdentasMrteini.
Nýlega hefur verið hækkað gjald fyrir stúdentaskírteini. Nam
hækkunin 5 krónum og kosta skírteinin nú 25 krónur. Var hækkun
þessi gerð vegna síaukins kostnaðar við starfsemi S. H. í.
Sameining Tánasjóða.
Til er lánasjóður stúdenta, er kallaður er hinn eldri. Hefur starf-
semi hans legið niðri með öllu um nokkurra ára skeið. Skuldlaus
eign sjóðsins mun nema ca. 22.500 kr., mest í skuldabréfum. S. H. í.
hefur fengið samþykki Háskólaráðs til þess að sameina hinn eldri
lánasjóð hinum nýja, sem nú er starfandi. Ennfremur hefur mennta-
málaráðuneytinu verið skrifað og það beðið um samþykki fyrir
sameiningunni. Ef svar ráðimeytisins verður jákvætt, sem búast má
við, er ekkert sameiningunni til fyrirstöðu.
Garðanefnd.
Nefnd var kosin s. 1. vetur til þess að kynna sér rekstur stúdenta-
garðanna og athuga möguleika á því, að stúdentar tækju rekstur
sumarhótelsins í sínar eigin hendur. Nefndin var kosin of seint til
þess að hún gæti skilað tillögum áður en Garðamir voru leigðir fyrir
s. 1. sumar, en ýmsir meðlimir nefndarinnar hafa aflað sér mikils-
verðra upplýsinga, sem fram mun koma, er nefndin skilar af sér
störfum.
Kosning í garðsstjóm.
Kosinn var fulltrúi í stjóm stúdentagarðanna Einar Valur Bjama-
son í stað Gunnars G. Schram, er ganga átti úr stjóminni. Vara-
maður var kosinn Kjartan Ólafsson, stud. mag. Kosning þessi fór
fram á fundi ráðsins 17. marz. Mótmæltu fulltrúar „Vöku“, að kosn-
ing færi fram þá, og töldu starfstíma G. G. S. ekki útrunninn. Leit-
að var eftir úrskurði lagaprófessors, Ólafs Jóhannessonar, um málið
og taldi hann kosninguna lögmæta.
Kosning í stjórn Lánasjóðs.
Nýlega voru kosnir tveir fulltrúar í stjóm Lánasjóðs stúdenta í
stað Bjöms Júlíussonar og Inga R. Helgasonar, er gengu úr stjóm-