Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 140
138
12. gr.
Forfallist aðalfulltrúi, skal sá af lista hans, er næstur stóð kosn-
ingu, taka sæti hans í ráðinu. Kosning allra fulltrúa gildir til eins
árs.
13. gr.
Stúdentaráðinu skal stjórnað af þremur ráðsmönnum: formanni,
féhirði og ritara. Skulu þeir kosnir á fyrsta fundi hvers nýs
Stúdentaráðs. Að því loknu skal Háskólaráðinu tilkynnt um skipun
Stúdentaráðsins.
14. gr.
Stjóm Stúdentaráðsins er fulltrúi þess innan Háskólans og utan.
Hún annast dagleg ráðsstörf.
15. gr.
Stúdentaráðsfundur er því aðeins lögmætur, að a. m. k. 5 fulltrúar
séu mættir. Afl atkvæða ræður úrslitum. Fundargerðir skal bóka.
Formaður stýrir fundum. Hann undirritar ásamt ritara fundargerðir
og erindi, sem ráðið sendir frá sér.
16. gr.
Sé um mál að ræða, er sérstaklega snertir ákveðna deild háskól-
ans, skal þeirri deild heimilt að senda fulltrúa á stúdentaráðsfund,
og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt. Skal stúdentaráðið þegar
tilkynna það viðkomandi deild, ef hún á ekki fulltrúa í ráðinu.
17. gr.
Fundir Stúdentaráðsins skulu auglýstir með eins sólarhrings fyrir-
vara. Þó er heimilt að boða til funda með styttri fyrirvara, ef stjóm
ráðsins telur það nauðsynlegt, enda sé þá fulltrúunum boðaður fund-
urinn sérstaklega.
18. gr.
Fráfarandi Stúdentaráð skal, áður en kosning fer fram, gera al-
mennum stúdentafundi grein fyrir gerðum sínum og leggja fram
reikninga ráðsins, endurskoðaða af tveim mönnum, sem til þess hafa
verið kosnir á almennum stúdentafundi. Sömuleiðis skal það senda
Háskólaráði skýrslu um störf sín á liðnu ári og hag þeirra fyrir-
tækja, er undir það heyra. Reglugerðir, er ráðið kann að setja um
slík fyrirtæki, skulu jafnan bomar undir almennan stúdentafund.
19. gr.
Stúdentaráði er skylt að halda almennan stúdentafund, ef minnst
fjórir ráðsmenn eða 20 stúdentar krefjast. Þó skulu þeir ætíð geta
um, hvaða mál þeir vilji, að borin séu upp á fundinum. Til almennra