Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Side 142
140
í hinum ýmsu greinum, og annaðist íþróttakennari Háskólans, Bene-
dikt Jakobsson, kennslu í þeim öllum.
Nokkrir æfingaleikir í körfuknattleik voru háðir við ýmis félög.
Má t. d. geta þess, að körfuknattleikssveit fór austur að Laugarvatni
til keppni í boði menntaskólans þar, og keppt var síðar við sömu
aðila í bænum.
Eins og undanfarin ár höfðu stúdentar greiðan aðgang að böðum
íþróttahússins og einnig að Sundhöllinni.
Fátt markvert bar til tíðinda í íþróttalífi stúdenta á árinu. Áhugi
verður að teljast allgóður, miðað við undanfarin ár, að minnsta kosti
fyrra hluta starfsársins. Allmikil aðsókn var bæði að körfuknatt-
leik og frjálsum íþróttum og nokkur að leikfimi. Var árangur á þeim
mótum, sem tekið var þátt í, allgóður. Eins og undanfama vetur
var úthlutað tímum í badminton í íþróttahúsinu til þeirra, er þess
óskuðu.
Seinni hluti starfstímans var öllu lakari, og verður það að reiknast
á kostnað veikindafaraldurs þess, er þá gekk, en íþróttahúsinu var
þá lokað og því engar æfingar. Má ætla, að þetta hafi áhrif á mót
þau, sem venjulega eru í febrúar og marz, þannig að t. d. hin ár-
legu skólamót falli niður að nokkru.
Eins og undanfama vetur hafði félagið eitt herbergi til umráða
í íþróttahúsinu sem skrifstofu, geymslu og til fundarhalda.
Stjómin notfærði sér heimild í lögum félagsins þess efnis, að
skipa nefndir innan félagsins, sem önnuðust skipulag hinna ýmsu
íþróttagreina. Alls vom starfandi 6 nefndir: Fimleikanefnd, hand-
knattleiksnefnd, körfuknattleiksnefnd, sundnefnd, frjálsíþróttanefnd
og badminton-nefnd.
Eitt af af þeim málum, sem stjómin hafði á dagskrá eins og
undanfarin ár, var endurheimt gamalla gripa félagsins, en ekkert
nýtt vannst í þeim málum.
Félagið er löglegur aðili að í. B. R. og í. F. R. N. og nýtur allra rétt-
inda, sem bandalagsfélög þeirra njóta.
IÞRÓTTAMÓT
I. Skólamót 1. F. R. N.
Körfuknattieiksmót 28. marz til 2. apríl 1955 í íþróttahúsi Háskól-
ans. í. S. sendi tvær sveitir pilta, A og B. A-sveit varð nr. 1 og
vann í. S. því þetta mót í 5. skipti í röð. B-sveit varð nr. 3. Alls
kepptu 7 lið.
Handknattleiksmót. 10. til 17. marz 1955 að Hálogalandi. 1. S.
sendi eina sveit pilta í A-flokki, sem varð nr. 1. Er þetta í 4. sinni í
röð, sem I. S. vinnur þetta mót.