Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Síða 122
120
Þessi hagnaðarhluti Garðsstjórnar mun fyrir síðasta ár nema krónum
160.000,00, en aðeins 80.000,00 kr. verða eftir í sjóðum hótelsins af
hagnaði þeim, sem varð á rekstrinum s.l. sumar og nam kr. 240.000,00.
Endurskipulagning StúdentablaSs.
Á fundi stúdentaráðs 16. nóvember 1960 var samþykkt að kjósa
nefnd til athuga mögulegan rekstursgrundvöll fyrir reglulegri útkomu
Stúdentablaðs og gera tillögur um framtíðarbúning blaðsins. Voru
kjörnir til starfans tveir sérfróðir menn, Styrmir Gunnarsson, stud.
jur., og Jón B. Hannibalsson, stud. jur.
í byrjun janúar 1961 lögðu þeir fram ýtarlega greinargerð, sem var
í aðalatriðum þannig:
Reynt verði að gefa blaðið út mánaðarlega og gera það þar með
að virkum þætti félagslífs stúdenta.
Ráðinn verði að blaðinu ritstjóri á launum, enda séu störf ritstjóra
við mánaðarblað það erilsöm, að ekki sé ofrausn að umbuna honum
í nokkru.
Leitað verði til valins hóps manna (contributors), er leggi blaðinu
til efni í samráði við ritstjóra til að gera það sem f jölbreyttast að efni.
Ennfremur að broti blaðsins verði breytt í dagblaðabrot og það
verði prentað á góðan dagblaðapappír.
Stúdentaráð féllst að mestu leyti á þessar tillögur. Hafa þegar verið
framkvæmdar nokkrar af þessum breytingum og brot blaðsins m. a.
stækkað. Ekki hefur þó tekizt að halda því úti mánaðarlega og veldur
þar, sem fyrri daginn, ótryggur fjárhagsgrundvöllur og sinnuleysi
stúdenta að skrifa í blaðið. Mun tapið við útgáfu hvers tölublaðs nema
um það bil 2000,00 krónum eða þeirri upphæð, sem greidd hefur verið
ritstjóra í laun. Þarf að reyna að tryggja þann mismun og mun þá
útgáfa blaðsins mánaðarlega vera tryggð, hefur enda hið nýja form
fallið í góðan jarðveg. Blaðið verður 40 ára á næsta ári.
Á starfstímabili þessa stúdentaráðs hafa komið út sex tölublöð.
Þar af tvö 1. desember, 1960 og 1961, útgefin af ritstjórnum kjörnum
á stúdentafundi.
1 maí 1961 kom út fyrsta blaðið í hinu nýja formi. Ritstjóri þess
var Guðni Gíslason, stud. jur. Sérstakt afmælisblað, sem tileinkað var
50 ára afmæli Háskóla íslands, kom út 6 .október. Ritstjóri þess var
Gylfi Baldursson, B.A., og með honum í ritstjórn Áslaug Ottesen, stud.
jur., Logi Guðbrandsson, stud. jur., og Sólrún Jensdóttir, stud. philol.
Var blað þetta sérstaklega vandað.
Þá kom út blað í desember og annað nú í byrjun febrúar. Ritstjóri
tveggja hinna síðustu blaða hefur verið Kristján Torfason, stud. jur.