Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Síða 129
127
inn Hannes Hafstein. Róbert Arnfinnsson leikari las úr Ævisögu
Hannesar Hafstein eftir Kristján Albertsson, sem út kom sama dag.
Einnig var lesið úr verkum skáldsins og félagar úr Fóstbræðrum
sungu ljóð Hannesar.
í bókmenntakynningarnefnd áttu sæti: Heimir Þorleifsson, B.A.,
Sigfús J. Ámason, stud. theol., og Þórður Harðarson, stud. med.
Félagsherbergin í kjallaranum.
Auk þess húsrýmis, sem Bóksölu stúdenta og Kaffistofunni var
ætlað í kjallaranum voru þar útbúin tvö herbergi ætluð deildarfélög-
um. Komu þau í hlut Orators, félags laganema og Félags læknanema.
Afhenti háskólarektor Orator sitt herbergi til afnota á hátíðisdegi
laganema þ. 16. febrúar 1961.
Á fundi læknanema þ. 15. marz 1961 afhenti rektor læknanemum
sitt herbergi. Bæði eru herbergin smekklega búin húsgögnum, sem
deildarfélögin hafa keypt.
Stúdenlaskiptasjóður.
Þar sem stúdentaráð hefur, samkvæmt háskólareglugerð og sér-
stakri reglugerð um sjóðinn, með ráðstöfun á fé sjóðsins að gera, þykir
rétt að gera hér grein fyrir starfsemi hans í stuttu máli.
Með háskólareglugerðinni frá 17. júní 1958 var ákveðið að y3 hluti
innritunargjalda skuli renna til stúdentaskiptasjóðs — sem vera skal
í vörzlu háskólaráðs. Hefur þessi upphæð numið allt frá 16.800 kr.
árið 1958 til kr. 22.000 fyrir árið 1961. Auk þessa f jár hefur verið veitt
á fjárlögum kr. 15.000,00 til stúdentaskipta, og var þessi fjárveiting
fyrir árin 1960 og 1961 lögð í sjóðinn, samkv. sérstöku samkomulagi við
menntamálaráðuneytið. Hefur með þessu fé verið mögulegt að auka
verulega stúdentaskipti og styrkja þá starfsemi, sem miðar að því að
auka slík skipti og kynni stúdenta almennt. Stúdentaráð 1959—60 lét
gera reglugerð um sjóðinn, sem háskólaráð hefur staðfest, og er hún
birt í Árbók Háskóla íslands 1959—60, bls. 92.
Fénu hefur aðallega verið veitt til deildarfélaganna, enda hefur þró-
unin orðið sú, að stúdentaskiptin hafa færzt meira og meira yfir á
þeirra hendur.
Þess ber að geta, að upphæðin, sem hefur verið veitt á fjárlögum,
var hækkuð í kr. 20.000,00 á f járlögum fyrir 1962, og kunna stúdentar
ráðamönnum beztu þakkir fyrir.
Yfirlit yfir tekjur sjóðsins og úthlutanir úr honum er birt síðast í
þessari skýrslu.