Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Side 132
130
Grétar Br. Kristjánsson, varaformaður SHÍ, var fulltrúi íslenzkra
stúdenta í norrænni sendisveit, sem heimsótti Júgóslavíu í boði júgó-
slavnesku stúdentasamtakanna 17.—30. maí s.l.
Haraldur Henrysson, stud. jur., tók þátt í hópferð Æskulýðssam-
bands íslands um V.-Þýzkaland í maí s.l. Voru þátttakendur einn frá
hverju aðildarfélagi ÆSÍ.
Njörður P. Njarðvík, stud. mag., tók þátt í ráðstefnu í Osló 25.—27.
ágúst um útgáfu á náms- og handbókum fyrir stúdenta á Norðurlönd-
um. Hann tók einnig þátt í hátíðahöldum í tilefni af 150 ára afmæli
háskólans í Osló 1.—6. september og var gestur Det Norske Studenter-
samfund og háskólans.
Kjartan Jóhannsson, form. íslenzka stúdentafélagsins í Stokkhólmi,
tók þátt í Alþjóðlegri stúdentaviku þar í borg 5.—12. desember 1961.
Markús Einarsson, stud. real., í Osló sat ársfund NSS í Osló í des-
ember síðastliðnum.
JSorrœnar formannaráöstefnur.
Stúdentaráð tók þátt í þremur formannaráðstefnum, en það hefur
nú tekið þátt i þessu samstarfi norrænna stúdenta óslitið frá 1955. Eru
ráðstefnurnar haldnar einu sinni til tvisvar á ári og þar rædd öll
áhuga- og hagsmunamál stúdenta, sem efst eru á baugi hverju sinni.
Einnig er málum vísað til einstakra sambanda milli ráðstefna til úr-
vinnslu.
Norrœn formannaráðstefna í Helsinki.
Formannaráðstefna var haldin í Helsinki 15.—18. desember 1960.
Hefur áður verið gerð grein fyrir helztu málum, sem rædd og tekin
voru fyrir á þeirri ráðstefnu. í ráðstefnunni tóku þátt af hálfu stúd-
entaráðs Hörður Sigurgestsson og Halldór Halldórsson. Á þessari ráð-
stefnu voru lögð drög að því, að halda formannaráðstefnu hér haustið
1961 í tengslum við 50 ára afmæli háskólans.
Norram formannaráðstefna í Uppsölum.
Norræn formannaráðstefna var haldin í Uppsölum dagana 9.—13.
maí s.l. Var hún viðameiri en slíkar ráðstefnur venjulega eru, því að
hún var einnig eins konar námskeið um alþjóðamál stúdenta, sem sér-
staklega voru rædd. Ráðstefnan var mjög vel undirbúin. Ráðstefnuna
sátu fyrir SHÍ Hörður Sigurgestsson og Grétar Br. Kristjánsson.
Ráðstefnan hófst að venju með skýrslum hvers lands um sig.
Fjölmörg mál voru rædd bæði af norrænum og alþjóðlegum
toga spunnin. Má þar nefna sameiginlegan norrænan markað fyrir
akademikera, samræmingu á gildi prófskírteina og réttinda, og regl-