Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1965, Blaðsíða 17
15
var það hin ágæta gjöf Landsbanka íslands í tilefni 75 ára
afmælis árið 1961, er stóð fjárhagsiegan straum af dvöl þeirra
hér. Hefir þegar orðið ágætur árangur af þessari stórmerku
gjöf og verður vissulega til frambúðar, þvi að hún gerir það
kleift að bjóða gistiprófessorum til viðskiptadeildar næstu 8
árin.
Tveir prófessorar héldu og fyrirlestra hér um lengra skeið
en títt er um gesti Háskólans. Norski prófessorinn Arvid Syr-
rist, prófessor í barnatannlækningum við tannlæknaháskólann í
Malmö, dvaldist hér mestallan janúarmánuð og hafði námskeið
í fræðigrein sinni. Ekki kaus hann að þiggja nein laun fyrir
kennslu sina, sem er mikils virði fyrir tannlæknakennsluna, og
er þetta starf hans mikils metið. Þá dvaldi próf. Richard Finn
Tomasson, félagsfræðingur frá Ulinoisháskóla, hér á landi um
tveggja vikna skeið og hélt hér fyrirlestra og stóð fyrir sem-
ínörum í fræðigrein sinni. Háskólinn er þakklátur Fulbright-
stofnuninni fyrir að hafa kostað för prófessorsins og dvöl hér
á landi.
Alls fluttu 16 erlendir fræðimenn fyrirlestra hér við Háskól-
ann, auk þeirra, sem þegar er getið. Þá las brezka skáldið
Auden upp úr kvæðum sínum í boði Háskólans. Fyrirlestrar
erlendra gesta Háskólans eru sívaxandi þáttur í starfsemi skól-
ans, og telst mér svo til, að á s.l. ári hafi erlendir gestir hald-
ið samtals um 30 fyrirlestra hér við skólann. Er þessi þáttur
í skólastarfinu mikilvægur, og af aðsókninni á slíka fyrirlestra
verður ráðið, að þeir eru mikils metnir af öllum almenningi,
svo og af kandídötum í þeim fræðigreinum, sem fyrirlestr-
arnir fjalla um. Æskilegt er þó, að aðsóknin væri enn meiri,
og beini ég því ekki sízt til stúdenta Háskólans, sem fyrir-
lestrarnir eiga mikið erindi til.
IV.
Háskólanum hafa borizt ágætar gjafir umiiðið háskólaár
umfram þær, sem þegar hafa verið greindar.
Framkvæmdabanki Islands varð 10 ára á s.l. ári. 1 tilefni
þess afmælis tilkynnti bankinn Háskólanum, að hann gæfi 2.8