Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 29
Evrópu, Kína og Bandaríkjunum í maí úthlutað 1.200 m.kr. styrk frá umhverfis-
asetlun ESB innan 7. rammaáætlunarinnar. Styrkurinn er veittur til þess að þróa
yfirgripsmikið jarðvegsmódel sem gerir kleift að skilgreina virkni jarðvegs til að
framleiða mat og trefjar, sía vatn. varðveita stöðugleika næringarefna. breyta
eiturefnum. geyma kolefni og vista lífverur og gen. Hlutverk íslensku vísinda-
mannanna er m.a. að ákvarða áhrif landnýtingar, loftslags og líffræðilegrar
fjölbreytni á efnahagslegt virði jarðvegs.
Fyrrverandi rektor Kennaraháskóla íslands heiðraður af
lllinois-háskóla
Árlega veitir Háskólinn í lllinois og nemendasamtök hans heiðursviðurkenningu
fyrrverandi nemendum sem skarað hafa fram úr og markað spor í samfélag sitt
með störfum sínum. í lok febrúar veitti Ólafur Proppé. fyrrverandi rektor
Kennaraháskóla íslands, viðtöku þessari virðulegu viðurkenningu síns gamla
háskóla.
Prófessor í eðlisfræði heiðraður af Eðlisfræðingafélagi
Bandaríkjanna
Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði. var á árinu heiðraður af Eðlisfræði-
félagi Bandaríkjanna með nafnbótinni „Framúrskarandi ritrýnir". Eðlisfræðifélagið
1 Bandaríkjunum eru einhver stærstu samtök eðlisfræðinga í heimi og eru yfir
47.000 eðtisfræðingar í háskólum og iðnaði. innan Bandaríkjanna sem utan.
skráðir í félagið. Félagið veitir viðurkenningu þeim vísindamönnum sem hafa af
serstakri kostgæfni lagt mat á greinar sem birtast í ritum félagsins. Þeir sem
viðurkenninguna hljóta þurfa að uppfylla strangar kröfur og er Viðar einn af 340
úr hópi 42.000 ritrýnenda sem voru heiðraðir árið 2009.
Rannsóknaprófessor við Háskóla íslands hlaut tvenn
verðlaun
Kári Stefánsson. forstjóri (slenskrar erfðagreiningar og rannsóknaprófessor við
Háskóla ístands, tók í maí við heiðursverðlaunum ESHG (European Society of
Human Genetics) fyrir framlag sitt til rannsókna í erfðavísindum. Afhendingin fór
fram á árlegri ráðstefnu ESHG í Vínarborg í Austurríki. ESHG-verðlaunin voru
fyrst veitt árið 2003 og hafa síðan verið veitt ártega evrópskum vísindamönnum
sem þótt hafa skara fram úr á sviði mannerfðafræði.
í lok október tók Kári Stefánsson síðan við Anders Jahre-verðlaununum sem veitt
eru árlega í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi árangur við rannsóknir í
taeknavísindum á Norðurlöndum. Jahre-verðtaunin. sem kennd eru við norska
viðskiptajöfurinn Anders Jahre. hafa verið veitt frá árinu 1960. Þau eru ein hin
virtustu sem veitt eru fyrir framlög til læknavísinda í Evrópu og þau stærstu á
Norðurlöndum. Nemur verðtaunaféð einni milljón norskra króna.
Sænsk vísindaakademía verðlaunar prófessor við Háskóla
Islands
Terry Gunnelt. prófessor í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild, fékk
viðurkenningu Kunglige Gustav Adolfs Akademien for svensk folkkultur fyrir
framlag til rannsókna á sviði þjóðsagna og var viðurkenningin veitt við hátíðlega
athöfn í Uppsatahöll 6. nóvember. Kungtige Gustav Adolfs Akademien for svensk
fotkkuttur eða Konunglega sænska alþýðumenningarakademían var stofnuð árið
1932. Meginhlutverk akademíunnar er að efla rannsóknir og útgáfu rita á sviði
afþýðumenningar.
Pfír nemendur Háskóla íslands hlutu styrki til að nema við
f-alifomia Institute of Technology
1 aPríl var tilkynnt um þrjá nemendur Háskóla ístands sem fengu styrk til að
vinna að 10 vikna svokölluðu SURF-verkefni við California Institute of Technology
(Cattech) Pasadena í Katiforníu, en Háskóli ístands er formlegur samstarfsaðili
skólans. Caltech er í hópi fimm fremstu háskóla heims og hafa m.a. 23 nóbels-
verðlaunahafar verið meðal starfsmanna skólans. Þetta er í annað sinn sem stík-
Um styrkjum er úthlutað en skólamir undirrituðu í fyrra samning um aukið
samstarf í kennslu og rannsóknum. Nemendur Háskóla íslands sem hlutu styrk-
lnn voru Egill Tómasson. nemi í rafmagns- og tötvuverkfræði. Katla Kristjáns-
dóttir, nemi í lífefnafræði. og Jan P. B. Muller. nemi í eðlisfræði. Einnig komu þrír
nemendur frá Cattech til Háskóla íslands um sumarið. einn í eðlisfræði undir
feiðsögn Kristjáns Leóssonar. vísindamanns á Raunvísindastofnun, einn undir
feiðsögn MagnúsarTuma Guðmundssonar. prófessors í Jarðvísindadeild. og einn
undir leiðsögn Þórarins Guðjónssonar, dósents í Læknadeild. Þess má geta að
tveir af þeim þremur nemendum sem fóru í SURF-verkefni til Caltech árið 2008.