Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 70
í Ijósi þjóðfélagsaðstæðna á íslandi leggur NSHÍ áherstu á gildi starfsráðgjafar og
nauðsyn þess að nemendur undirbúi þátttöku sína á vinnumarkaðinum. Eins og
undanfarin ár tók NSHÍ þátt í hinum árlegu framadögum sem hatdnir voru í
febrúar 2009 á vegum AIESEC. alþjóðlegu stúdentasamtakanna, og kynnti
starfsemi sína.
Starfsþjálfun
NSHÍ telur það vera eitt af hlutverkum sínum að standa að starfsþjálfun nemenda
í náms- og starfsráðgjöf. Veturinn 2008-2009 voru samtals 17 nemendur í
starfsþjálfun á vegum NSHÍ, 12 á fyrra þrepi starfsþjálfunar og 5 á seinna þrepi.
Haustið 2009 voru 18 nemendur í starfsþjálfun. Þetta er ánægjulegur verkþáttur
þar sem NSHÍ tekur þátt í því að stuðla að og efla fagmennsku í náms- og
starfsráðgjöf á íslandi.
Sérúrræði í námi
NSHÍ heldur utan um þjónustu við nemendur sem þurfa af einhverjum ástæðum
sérúrræði í námi. Ástæður þess að nemendur gera samning um úrræði í námi
geta verið ýmiss konar, s.s. líkamleg fötlun. geðraskanir. prófkvíði. lesblinda,
taugasálfræðileg vandamál eða veikindi.
Líkt og undanfarin ár fjölgaði nemendum með samning um sérúrræði.
Nemendur við Háskóla íslands sem voru með samning um sérúrræði í námi
háskólaárið 2008-2009 voru 462. Heildarfjöldi nemenda sem komu í ráðgjöf vegna
sérþarfa í námi árið 2009 var 1004.
Innlend og erlend samstarfsverkefni
NSHÍ tók þátt í mörgum samstarfsverkefnum bæði á innlendum og erlendum
vettvangi á árinu 2009. Þessi samstarfsverkefni bjóða upp á tækifæri til að bæta
þá þjónustu sem boðið er upp á og að starfsfólk taki þátt í faglegri umræðu.
Þau eru eftirfarandi:
• Samstarf við Félags- og mannvísindadeild um starfsþjálfun nemenda í
náms- og starfsráðgjöf
• Samstarf við markaðs- og samskiptasvið vegna móttöku nýnema
• Stjórn Þórsteinssjóðs
• Ráð um málefni fatlaðra
• NUAS. norrænt samstarf námsráðgjafa við háskóla á Norðurlöndum
• NNCD, norrænt netverk um aðgengi fatlaðra að æðri menntun
• Leonardo da Vinci verkefni. transfer of innovation: DARE 2 Disability
Awareness - A New Challenge for Employees
• NNK, Nordisk Netverk for Karriervejledere, samstarf við starfsráðgjafa í
háskólum á Norðurlöndum
• NVL, norrænt tengslanet um nám fullorðinna
• ELGPN. European Lifelong Guidance Policy Network (bakhópur)
• HEAG. Higher Education Accesibility Guide. upplýsingagátt um aðgengi
fatlaðra að háskólum í Evrópu
Skjalasafn
Starfslið
Sjöfn Hjörvar var forstöðumaður, Magnús Guðmundsson skjalavörður var í leyfi
frá 1. maí 2009 til 1. febrúar 2010 við að skrifa aldarsögu skólans. Hanna Zoéga
Sveinsdóttir, fulltrúi við skráningu stafrænna Ijósmynda, lét af störfum sökum
aldurs í september 2009. í hennarstað tók Áslaug J. Marinósdóttir við skráningu
stafrænna mynda auk þess sem Áslaug leysti Magnús Guðmundsson af í fjarveru
hans. Nils Kjartan Guðmundsson var kerfisstjóri Námunnar (GoPro) -
skjalastjórnarkerfis.
Aðbúnaður og geymslur
Miklar breytingar urðu á aðstöðu skjalasafnsins á árinu. Ráðist var í það stóra
verkefni að loka rimlagólfi sem aðskildi skrifstofur skjalasafnsins og opna á milli.
Er skjalasafnið því í stærra og opnara rými en áður auk þess sem útbúin var
fundaraðstaða og aðstaða fyrir þá sem leita til safnsins og þurfa á gögnum þess
að halda við rannsóknir eða heimildaöflun. Aðalskjalageymsla safnsins.
Pétursborg, fékk einnig upplyftingu en þar var komið fyrir fleiri renniskápum sem
rúma meira en fastar tréhillur sem fyrir voru.
Hópvinnukerfið Náman (GoPro)
Umsjón með málaskrár- og hópvinnukerfinu Námunni (GoPro) var eitt af helstu
68