Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 126
Hrafnhildur Bragadóttir lögfræðingur - Aðgöngumiðar að
andrúmsloftinu - losunarheimildir og viðskipti með þær.
9. október Skúli Magnússon, ritari ERA-dómstólsins og dósent við
Lagadeild Háskóla íslands - Hversu ráðgefandi eru
„ráðgefandi álit" ERA-dómstólsins?
27. nóvember Tor-Aksel Busch. ríkissaksóknari í Noregi - Saksóknarar í
Noregi. skipulag, verkefni og samskipti við stjórnvöld.
Mannréttindastofnun
Almennt yfirlit og stjórn
Stjórn Mannréttindastofnunar var þannig skipuð árið 2009: Björg Thorarensen,
prófessorvið Lagadeild Háskóla íslands, formaður. Hjördís Hákonardóttir
hæstaréttardómari. Róbert R. Spanó. prófessorvið Lagadeild Háskóla íslands. og
Ásgerður Ragnarsdóttir hdt.. meðstjórnendur. Varamenn í stjórn voru Hilmar
Magnússon hrl. og Pétur Leifsson, lektor við Lagadeild Háskóla íslands.
Forstöðumaður í hlutastarfi var María Thejll hdl.
Rannsóknir
Réttarstaða útlendinga
Mannréttindastofnun fékk styrk 2008 frá dómsmálaráðuneyti til að vinna að
rannsókn um réttarstöðu útlendinga. Um er að ræða lögfræðilega rannsókn á
réttarstöðunni að undanskilinni réttarstöðu flóttamanna. Dóra Guðmundsdóttir
stjórnaði verkefninu f.h. Mannréttindastofnunar og með henni störfuðu tveir
laganemar. Rannsókninni lauk á árinu 2009 og birtust niðurstöður á heimasíðu
stofnunarinnar.
Rannsókn á álitum mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna
Mannréttindastofnun fékk styrk dómsmálaráðuneytis tit að skoða úrskurði
Mannréttindanefndar SÞ. flokka þá og í framhaldinu greina hvaða réttaráhrif þeir
hafa. Tveir laganemar unnu að rannsókninni á árinu 2008. Rannsókninni lauk á
þessu ári og birtast niðurstöður hennará heimasíðu stofnunarinnar. Björg
Thorarensen prófessor stjórnaði rannsókninni.
Evrópuráðsskýrsla um lagalega stöðu gagnkynhneigðra á
íslandi og mismunun á grundvelli kynhneigðar
Að beiðni Mannréttindastofnunar Danmerkur í nóvember 2009 tók stofnunin að
sér að gera skýrslu um stöðu gagnkynhneigðra á íslandi sem skyldi vera lokið í
janúar 2010. Stofnunin fól Dóru Guðmundsdóttur. aðjunkt við Lagadeild. að vinna
skýrsluna.
Kynningarstarfsemi - Útgáfa
Fræðirit um mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna
Stofnunin gaf úr ritið Mannréttindasamingar Sameinuðu þjóðanna - Meginreglur,
framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt. 421 bls.. í árslok 2009. Utanríkisráðuneytið
veitti stofnuninni styrk til útgáfunnar. Markmiðið með því að gefa út íslenskt
fræðirit um efnið er að taka sérstaklega fyrir þá mannréttindasamninga Samein-
uðu þjóðanna sem island er aðili að. greina helstu meginreglur þeirra og túlkun
og framkvæmd nefnda sem hafa eftirlit með þeim og þó einkum að varpa Ijósi á
stöðu þeirra að íslenskum rétti og áhrif þeirra á lagasetningu og lagaframkvæmd.
Átta fræðimenn skrifuðu kafla í bókinni: Björg Thorarensen. Elsa S. Þorkelsdóttir,
Guðmundur Alfreðsson, Hrefna Friðriksdóttir, Jakob Mölter. Kjartan Bjarni
Björgvinsson, Kristín Benediktsdóttir og Róbert R. Spanó.
Dómareifanir Mannréttindadómstóls Evrópu
í tímaritinu eru reifaðir valdir dómar sem taldir eru hafa sérstakt gildi fyrir túlkun
ákvæða sáttmálans. Þá eru teknir með dómar sem hafa sérstaka þýðingu fyrir
íslenskan rétt, einkum í málum gegn hinum Norðurlöndunum þar sem oft er til
umfjöllunar löggjöf eða ákvarðanir sem eiga hliðstæðu í íslenskri réttarfram-
kvæmd. Loks eru birtar í heild sinni í íslenskri þýðingu ákvarðanir og dómar í
kærumálum gegn íslenska ríkinu sem fram til þessa hafa aðeins verið birtir á
heimasíðu dómsmálaráðuneytisins. Annað hefti ársins 2008 kom út í apríl 2009 en
124