Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 280
heimsstofn spóa en þær rannsóknir eru í höndum meistaranema. Fjölmörg
önnur verkefni eru í undirbúningi.
Rannsókna- og fræðasetur Háskóla
íslands á Vestfjörðum, Bolungarvík
Rannsóknasetrið hóf störf með ráðningu forstöðumanns í nóvember 2007.
Háskóli íslands. Náttúrustofa Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaður eru
samstarfsaðilar og skipa fulltrúar þeirra stjórn setursins ásamt fulltrúa frá
Fjórðungssambandi Vestfjarða. Fulltrúar í stjórn eru; Gísli Már Gíslason
prófessor, tilnefndur af Háskóla Islands, Anna Dóra Sæþórsdóttir lektor. tilnefnd
af Háskóla Islands, Rögnvaldur Ólafsson dósent, formaður. tilnefndur af rektor
Háskóla fslands. Anna Guðrún Edvardsdóttir. tilnefnd af Bolungarvíkurbæ, Smári
Haraldsson. tilnefndur af Náttúrustofu Vestfjarða, og Úlfar B. Thoroddsen.
tilnefndur af Fjórðungssambandi Vestfirðinga.
Forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla íslands á Vestfjörðum er
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir náttúrufræðingur. Forstöðumaður setursins er
staðsettur í Bolungarvík en setrið hefur einnig starfsstöð á Patreksfirði. Á árinu
2009 störfuðu 11 sérfræðingar og háskólanemar við rannsóknasetrið um lengri
eða skemmri tíma. I desember 2009 var einn starfsmaður við starfsstöðina í
Bolungarvík og sex framhaldsnemar unnu að rannsóknaverkefnum beint tengdum
setrinu. Við starfsstöð á Patreksfirði var einn starfsmaður og einn rannsóknanemi.
MS-nemi frá Háskólanum á Akureyri/Háskólasetri Vestfjarða vann sitt verkefni
sem hluta af rannsóknum setursins á vistfræði sjávar og hafði aðstöðu og leiðsögn
frá setrinu. Þá hafa einn doktorsnemi og einn MS-nemi frá Háskóla íslands haft
vinnuaðstöðu við setrið á árinu 2009.
Verkefni rannsóknasetursins hafa einkum verið á sviði náttúrufræða. samfélags-
fræða og ferðamála, með áherslu á viðfangsefni sem tengjast náttúruvernd, sam-
félagsþróun og atvinnumálum á Vestfjörðum. Sem dæmi um verkefni sem unnin
hafa verið á árinu má nefna „Viðhorf Islendinga til landsbyggðarinnar", „Torfu-
atferli þorsks", „Uppbygging ferðaþjónustu á Vestfjörðum", „Myndun og viðhald
líffræðilegs fjölbreytileika", „Uppeldisstöðvar þorskseiða" og „Atferli þorska í kví-
um". Rannsóknarverkefni sem sérfræðingar setursins stýra hlutu á árinu 2009
styrki úr eftirfarandi sjóðum: Rannsóknasjóði Rannsóknaráðs ístands. AVS -
rannsóknarsjóði í sjávarútvegi. Verkefnasjóði sjávarútvegsins, Rannsóknasjóði
Háskóla Islands. Nýsköpunarsjóði námsmanna og Vaxtarsamningi Vestfjarða.
Samtats tók setrið eða sérfræðingar á vegum þess þátt í tíu samstarfsverkefnum.
sem hafa þegar verið styrkt af rannsóknasjóðum, í samstarfi við háskóla.
rannsóknastofnanir og fyrirtæki innan lands og utan.
Starfsfólk og nemar setursins kynntu niðurstöður fjögurra nemendaverkefna, auk
stærra þemaverkefnis á alþjóðlegri ráðstefnu í Berlín í nóvember 2009. Auk þess
hafa starfsmenn og nemar haldið fjölda fyrirlestra og kynninga bæði á
vísindaráðstefnum og fundum fyrir almenning.
Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum
Starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var blómteg á árinu
2009. Innan stofnunarinnar er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem hverfast um
að varðveita. efla og rannsaka margvísleg gögn stofnunarinnar og miðla þeim til
almennings og fræðimanna á Islandi og um allan heim. Stofnunin er háskóla-
stofnun í góðu samstarfi við íslenska háskóla. ekki síst Háskóla fslands. En hún
er ekki síður atþjóðleg stofnun í nánum tengslum við vísindamenn og systur-
stofnanir á sínu fræðasviði. Samstarfssamningur er í gildi milli Háskóla Islands
og StofnunarÁrna Magnússonar í íslenskum fræðum. Starfsmenn kenna nám-
skeið við skólann og háskólakennarar og stúdentar nota rannsóknarbókasafn
stofnunarinnar, auk þess sem nemendum í framhaldsnámi er veitt þar vinnuað-
staða. Forstöðumaður Árnastofnunar er jafnframt prófessor við Hugvísindasvið
Háskóla íslands.