Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 4

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 4
178 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. senn, bæði samkvæmt merkingu orðsins, og svo fylgdi því sá kostur, að það hefði ekki breytst, þótt andstæða þess, hugtakið „skilgetinnu, hefði orðið fyrir einhverri breyt- ingu. En Alþingi gerði hugtakið jákvætt, og kemur það væntanlega ekki að ógagni, meðan bæði hugtökin haldast óbi’eytt, enda ætlaðist Alþingi ekki til þess, að gerð væri nein raunveruleg breyting á afstöðu lmgtakanna. Móðir óskilgetins barns hefir yfirleitt sarna rétt yfir barni sinu og sömu skyldur gagnvart því, sem foreldri hefir yfir og gagnvart skilgetnu barni sínu, 32. gr. utan- hjónabandsbarnalaganna, sbr. þó 34. gr., sem felur skóla- og fræðslunefndum sérstaka umsjá nreð uppeldi óskilget- inna barna. Móðirin er í fyrirsvari fyrir barnið, gegn al- mannavaldinu, um framfærslu og uppeldi barnsins. Að þessu leyti og yfirleitt er afstaða móður og óskilgetins barns söm og áður var. Þó er sú breyting á orðin, að svo- kallað hórbarn erfir óskilfengna móður og móðurfrændur og þau barnið, enda skiftir það, samk''T. 2. gr., yfir höfuð ekki framar máli, þótt foreldri óskilgetins barns sé gift fyrir. „Hórbörnu eru þannig úr sögunni, og ekki of snemma. I 2. kap. laganna eru nokkur nýmæli um feðrun óskilgetins barns og um mál til meðlagsgreiðslu af hendi karlínanns. Aður var það a. m. k. vafasamt, bvort aðrir gætu höfðað barnsfaðernismál en barnsmóðirin. En samkv. 5. gr. geta það nú aðrir lögmæltir framfærslumenn barns- ins, stjúpforeldri og kjörforeldri, og svo framfærslusveit, hafi þeir eða sveitin tekið við barninu til framfærslu. Áður varð faðernismál ekki höfðað fyrr en eftir fæð- ingu barnsins. En samkv. 6. gr. getur barnsmóðirin — þar á móti ekki aðrir framfærslumenn — nú liöfðað slíkt mál, sé 6 mánuðir liðnir frá getnaði, fósturs, að vitni þjón- andi læknis eða Ijósmóður. Er þetta heimilað til þess að barnsmóðir geti fengið styrk á erfiðum tíma fyrir hana og afleiðingaríkum fyrir fóstrið og barnið. A hinn bóginn varð barnsfaðernismál heldur ekki

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.