Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 5
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 179 höfðað eftir lát þess, sem barnið var kent. En eftir 7. gr. má höfða faðernismál gegn búi manns, skiftaráðanda, skiftastjóra eða erfingjum. Svo má og höfða slíkt, mál gegn horfnum manni og manni, sem farinn er af landi burt, og þá eftir opinbern'i stefnu, á síðasta varnarþingi mannsins. Barnsmóðir verður að höfða málið innan árs frá fæð- ingu barnsins og aðrir framfærslumenn, þar með talin framfærslusveit, innan árs frá því þeir tóku barnið til framfærslu, nema stjórnarráðið hafi lengt, frestinn af sér- stökum ástæðum, 8. gr. Dómaranum eru í 12. gr. fengin miklu áhrifameiri tök á málinu en áður var. Hann á af sjálfsdáðum að afla allra fáanlegra upplýsinga um faðerni barnsins, þar á meðal sérstaklega skýrslu barnsmóður, læknis eða ljós- móður og þess manns, sem barnið er kent, enda getur hann jafnvel látið sækja barnsmóður og stefnda með valdi til yfirheyrslu, og þvingað þau til að svara spurningum sínum með þingvítisbótum, barnsmóður þó því að eins, að hún sé elcki sækjandi málsins. Sé hún það, en sæki annað- hvort ekki þing eða neiti að svara spurningum dómarans, verður málinu frávísað. Það talið nægilegt aðhald að henni. Barngetnaður, ekki síst utanhjónabands, er þess eðlis, að hann verður sárasjaldan sannaður á karlmanninn, svo að örugt sé, með öðrum sönnunargögnum en játningu mannsins. Játi karlmaður samförum við kvennmann á barngæfum tíma eða sannist þær á hann gegn neitun hans og sé ekki ástæða til að ætla, að konan hafi haft sam- farir við aðra karlmenn á sama tíma, þá verður maður- inn umsvifalaust dæmdur faðir barnsins, 14. gr. Sé hins vegar hvorugu til að dreifa, er annaðhvort að gera, að sýkna manninn eða láta úrslit málsins velta á eiði annarshvors aðilja. Áður var karlmanninum, er svo stóð á, langoftast dæmd- ur synjunareiður samkvæmt N. L. 6.13.5., eiðurinn heimil- aður manninum, jafnvel gegn allsterkum líkum barnsmóður. Var þannig lagt á vald mannsins, að losna undan öllum 12*

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.