Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 15

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 15
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 189 þeirri upphæð, er henni kynni að hafa verið úrskurðuð samkvæmt 29. gr. sem framfærslustyrkur, 2. mgr. 30. gr. Barnsmóöir á aðgang að dvalarsveit hæði um fram- færslustyrkinn samkvæmt 29. gr. og um framfærslu- og hjúkrunarstyrkinn samkvæmt 30. gr., en verður þó að ganga eftir hvorumtveggja styrknum innan 6 mánaða frá því að hún varð heil. Eins og getur að framan, er móðir öskilgetins barns aðalaðili um framfærslu og uppeldi barnsins og í fyrir- svari fyrir það í þessum efnum. En af þessu leiðir, að hún verður að hafa- tök á að konra þessum skyldum sínnm í framkvæmd, hún verður að hafa rétt til að ráða barninu meðan framfærslu- og uppeldisskyldan hvílir á henni eða meðan barnið er á ómagaaldri, enda hefir hún foreldra- vald ytír barninu að lögum. Samkv. 3. gr. lögræðislag- anna nr. 60/1917 ræður móðir óskilgetnu barni. Þessari meginreglu er og haldið í 1. mgr. 32. gr. utanhjónabands- barnalaganna: „Móðir óskilgetins ósjálfráðs barns hefir jafnan rétt og foreldri skilgetins barns til þess að hafa barn sitt hjá sér og ráða því að öðru leyti,“ þó með áður- nefndum viðbæti samkv. 34. gr. Faðir barnsins á þvi að eins rétt á að fá umráð yfir barninu, að móðir þess andist, fari alfarin af landi burt eða teljist óhæf, að dómi valdsmanns með ráði sóknar- prests og héraðslæknis, til að ala barnið upp og að hann auk þess annaðhvoi’t skilgeri barnið samkv. 38. gr. eða þinglýsi því, 33. gr. Þó getur stjórnari’áðið leyft fóst- urforeldri þinglýsts barns að halda barninu áfram. Eftir 3ö. sbr. 44. gr. utanhjónabandsbai’nalaganna erfa öll óskilgetin börn, liórbörn eklci síður en önnur, sem fædd eru 10 mánuðum þrítugnættum eftir 1. Janúar 1922, föður og föðurfiændur og faðir og föðurfrændur börnin, svo framai’lega sem faðirinn hefir annaðhvoi’t gengist við barninu fyrir presti eða valdsmanni og þeir bókað játninguna eða lxann játað faðerninu bi’éflega og

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.