Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 21
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 195
fæst úr búinu til framfærslu barnsins, kemur annaðhvort
ekki til kasta framfærslusveitar hans eða hún fær frarn-
lög sín endurgreidd. Nú fæst ekki nægilegt úr búinu, ann-
aðlivort vegna þess, að eftirlátið fé var ekki svo mikið
eða framfærslufúlga hins óskilgetna barns takmarkaðist
við arftöku skilgetinna barna, mun þó meðlagið verða greitt
af fúlgunni svo lengi hún tilvinst, en framfæi'slusveit föð-
ur verða að taka við síðan.
Ef ekkja situr í óskiftu búi ber henni að svara með-
laginu árlega, nema valdsmaður úrskurði, að hún skuli
sökum breytti’a ástæðna hennar laus við að greiða það að
nokkru eða öliu leyti, og kemur þá til kasta framfærslu-
sveitar með það af meðlaginu, sem áskortir meðal-meðgjöf.
Ef barnsfaðir lætur ekkert eftir sig, verður framfærslu-
sveit að greiða fult meðal-meðlag.
Ef barnsfaðir á elcki framfærslurétt hér á landi og
víkur héðan án þess að eftirláta eignir en barnsmóðirin
hefir meðlagsúrskurð í höndum, þá er spurningin hvernig
fer um framfærslueyi’i þann, er föðurnum ber að greiða.
Dvalarsveit móður er nú skylt að greiða henni meðlagið,
meðal-meðlag, hversu sem tiltekst um endurgreiðslu með-
lagsins frá framfærslusveit föðurins. Ef ekki er um danska
eða færeyska framfærslusveit að ræða má búast við, að
dvalarsveit barnsmóður fái ekki meðlagið endurgreitt
þaðan. En hinsvegar getur það ekki komið til mála, að
dvalarsveit barnsmóður eigi að bera meðlagið, og virðist
því ekki nema um tvent að velja, að móðirin ein eða
framfærslusveit hennar kosti uppeldi barnsins á sama hátt
og um ófeðrað barn væri að ræða eða um framfærslu
barnsins af föðurins hálfu verði beitt með lögjöfnuði 2.
mgr. 44. gr. fátækralaganna þannig, að framlag dvalai’-
sveitar barnsmóður verði henni endurgreitt úr landssjóði.
Virðist þessi leiðin líklegri en annars skortir bein laga-
ákvæði um þetta atriði.
Á meðan liinn útlendi barnsfaðir dvelur hér á landi
fer um endurgreiðslu framlags dvalarsveitar barnsmóður
svo sem 1. mgr. 44. gr. fátækralaganna mælir fyrir. Ef
13*