Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 31

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 31
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 205 þeir sem mestu ráða hér um löggjafarmál láti þetta mál til sín taka. 1. kapítuli laganna, §§ 1—9, er um samningsgjörð. Er í 1. gr. mælt svo fyrir að tilboð um samningsgjörð og svar við slíku tilboði skuli vera skuldbindandi fyrir þann er tilboðið gjörði eða svarið gaf. Er með þessu lögfest „loforðsreglan“ svonefnda þ. e. sú meginregla að loforðið eitt út af fyrir sig nægi til að binda loforðsgjafíi, þó eigi sé það samþykt. Sú regla var áður talin gilda á Norður- löndum og talin er hún gilda hér og styðst það við á- kvæði ob. 25. jan. 1820. 2. og 3. gr. eru um samþykkis- frest. Sé ákveðinn frestur settur til samþykkis er nóg að samþykkið sé komið til tilboðsgjafa áður en fresturinn er liðinn, hann þarf því ekki að hafa kynnt sér það innan frestsins. Sé tilboð gjört í bréfi eða símskeyti og ákveð- inn frestur settur til samþykkis, telst fresturinn frá dag- setningardegi bréfsins eða þeim tíma dags er símskeytið er afhent til sendingar. Sé enginn frestur settur í tilboð- inu skal samþykkja það strax sé það munnlegt. En sé það gjört í bréfi eða símskeyti skal samþykki koma til til- boðsgjafa innan þess tíma er hann mátti telja hæfilegan er hann sendi tilboðið, og skal þá gjört ráð fyrir að til- boðinu seinki ekki á leiðinni, að samþykkjandi hafi hæfi- legan umhugsunarfrest og að svari hans seinki ekki á leið- inni. Sé tilboðið gjört með símskeyti slcal svarið sent með sama hætti eða svo að það komist jafn fljótt til viðtak- anda, seni það kæmist ef það væri sent með símskeyti. Komi samþykki of seint telst það nýtt tilboð, nerna því að eins að samþykkjandi hafi mátt ætla að það kæmi nógu snennna. Er svo er ástatt, verður viðtakandi að til- kynna samþykkjanda að svarið liafl komið ol' seint ella telst samningur gjörður með aðilum, 4. gr. Tilboð, sem hafnað er, er þar með fallið úr gildi, þó samþykkisfrest- urinn sé þó eigi enn liðinn, 5. gr. Ef svar hljóðar sem samþykki, en er að efni til í ósamræmi við tilboðið, þá telst það neitun á tilboðinu og jafnframt nýtt tilboð. Þetta gildir þó eigi ef viðtakandi svarsins má sjá að sendandi

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.