Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 49

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 49
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 223 þær öskir uppfyltar og hann mun líka að öðru leyti hafa verið gæfumaður. Hann vann sér það að vera tal- inn einn af allra fremstu mönnunum í sinni fræðigrein. Og það sem meira var umvert, hann einn liinn best metni maður þjóðar sinnar og allir litu upp til hans með virð- ingu. I samsæti sem honum var haldið lögfræðingafélagi einu í I-löfn 1906, á 25 ára prófessorsafmæli hans, var sungið gamankvæði þar sem drepið var á ýmsar ávirð- ingar í opinberum málum í Danmörku og var viðlagið jafrtan: Det vilde Julius Lassen aldrig have gjort. Varð umtal um þetta í blöðunum og kvæðið prentað þar, því einhverjir stjórnmálamenn, er í samsætinu voru, liöfðu firrst. En eg'tel engan vafa á því, að kvæðið hafi þótt sann- mæli að því er til heiðursgestsins tók, því allir vissu að Julius Lassen var vammlaus maður og vítalaus. 0. L. Bókafregn. Bankpolitík af dr. Axel Nielsen, Professor ved Köben- havns Universitet. Förste Del: Beskrivelser, Köbenhavn 1923. Um aldamótin kom út Bankpolitík eftir prófessor William Scharling. Var ]>að fyrsta handbók í bankafræði, er út kom á Norðurlöndum og var hún mikið notuð sem kenslubók við há- skólana þar. Var hún þýdd á þýsku og einnig notuð talsvert við þýska háskóla. Eins og gefur að skilja er bók próf. Scharlings orðin að ýmsu leyti úrelt og hefir lengi verið þörf á nýrri handbók í bankafræði. Nii hefir dr. polit- Axel Nielsen, sem er eftirmaður próf. Scharlings við Kaupmannahafnarháskóla, bætt úr þessu og er nýkomið út fyrra bindið af bók hans um bankafræði. í þessu útkomna bindi, sem liann nefnir „Beslcri- velsen“, er lýst bankamálunum, vexti þeirra og viðgangi, í hinum ýmsu löndum, en í síðara bindinu, sem liann nefnir „La;ren“, verður skýrt frá kenningum þeim, setn fram liafa komið í bankafræðinni og afstöðu höfundarins til þeirra. í bankalýsingu sinni bindur höf. sig ekki við seðlabank- ana eingöngu, eins og fyrirrennari hans gerði, heldur lýsir hann

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.