Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1965, Qupperneq 13

Dýraverndarinn - 01.03.1965, Qupperneq 13
sérkennilegt að efnisvali, persónulýsingum og stíl, ef liann hefði lagt stund á skáldsagnaritun á bezta skeiði ævinnar og gel'izt sæmilegt tóm til slíkra starfa. Hann lézt árið 1945 eftir meira en tveggja áratuga heilsubrest. Þegar hann hætti ritstjórn Dýraverndarans, vald- ist til hennar Einar Einarsson Sæmundsen skógar- vörður. Hann var fæddur austur í Jökulsárlilíð á Fljótsdalshéraði árið 1885, en ólst upp í Vopna- lirði. Tvítugur fór hann utan og nam í þrjú ár skógrækt í Danmörku, varð síðan skógarvörður á Vöglum í Fnjóskadal, en frá 1910 á Suðurlandi og átti lengstum heima í Reykjavík. Hann lézt árið 1953. Einar var mikill vinur dýranna og alls, sem lifir og grær. Hann var gleðimaður og eignaðist marga vini, hvar sem leiðir lágu, var listhneigður og ljóðelskur, hagmæltur og hraðkvæður og gæddur ljóðrænni gáfu, sem trúlega hefði gert hann að ljúfu og vinsælu ljóðskáldi, ef hann hefði lagt rækt við hana. Hann var og leikinn og lipur á óbundið mál. Hestum unni hann allra dýra mest og var hestamaður af nautn og list. Eiggja eftir hann bæk- ur um hesta og hestamennsku, og hann safnaði hestavísum.' Að honum látnum kont út eftir hann löng skáldsaga, Sörli, sem fjallar á sérstæðan hátt um hest, er var mikið, en viðkvæmt efni í kosta- grip. Einar skrifaði og frásagnir, smásögur og grein- ar í blöð og tímarit. Einar var tvisvar ritstjóri Dýraverndarans, fyrst frá og með árinu 1930 og þangað til á miðju ári 1937, að liann liætti sakir heilsubrests, síðan aftur árin 1944—1946. Hann þekkti margt manna, sem höfðu Jón Pálsson, banka- gjaldkeri og jra'ði- maður. Simon Jáh. Agústs- son, prójessor og rithöfundur. yndi af dýrum, og varð honum vel til um efni í blaðið, en sjálfur skrifaði hann lítið í það og virð- ist hafa íorðazt deilur, enda maður óáleitinn og þrátt fyrir létt og glatt lijal í rauninni á þann hátt hlédrægur, að honum virtist mjög éteiginlegt að flíka því í bundnu máli sem óbundnu, sem honum var viðkvæmt og hann hafði lagt mesta rækt við — þótt stundum léti hann til þess leiðast í þröngum hópi vildarvina. Ef til vill hefur honum fundizt svo rnikið tómlæti ríkjandi hjá þorra manna á rit- stjórnarárum hans um dýravernd og auknar að- gerðir á jjeim vettvangi, að honum hafi virzt hann mundu aðeins vinna fyrir gíg, el' hann legði til- finningar sínar og skaphita í skrif um þau ntál. Þá er Einar E. Sænmndsen varð að hætta ritstjórn Dýraverndarans árið 1937, tók við henni maður, sem átti að baki langa ævi þrotlauss starfs í þágu félagslegrar framvindu á ótrúlega mörgum sviðum, meðal annars í Jjágu dýraverndar. Það var Jón Pálsson, lengi gjaldkeri Landsbanka íslands í Reykjavík. Hann var fæddur í Syðra-Seli við Stokks- eyri árið 1865 og starfaði, unz hann var maður liáll- fimmtugur, sem kennari og skrifstofumaður á Stokkseyri og Eyrarbakka, en liuttist síðan til Reykjavíkur. Bæði eystra og síðan í Reykjavík sýndi hann frábæran áhuga á þjóðnýtum fræðslu- og líknarstörfum og vann að þeim af einstæðri ósér- plægni og atorku. Meðal annars stofnaði hann ár- ið 1934, þá nær sjötugur, luglavinafélagið Fönix, þar sem hart nær sjö tugir drengja kynntu sér undir hans handleiðslu líf íslenzkra fugla og unnu að fuglavernd, og starfaði ]jað félag árum saman, þótt D V RAV ERNDARINN 13

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.