Dýraverndarinn - 01.03.1965, Side 23
tækjum til þess að rata leiðina frá Evrópu suðtir í
Persaflóa. Olíuflákarnir eru fullnægjandi vegvísir."
I»að ætti að geta orðið öllum ljóst af svona brcf-
kafla, hvert nauðsynjamál það er, að tekið verði
fyrir olíumengun sjávar, og er það ekki aðeins von,
heldur vissa dýraverndunarsamtakanna, að ekki
verði látið hjá líða að fara fram á, að rússnesku
olíuflutningaskipin losi ekki olíu í sjóinn nær landi
en til er tekið í Lundúnasamþykktunum. Ennfremur
er sú krala sjálfsögð, sem hér að framan getur, að
alls ekki verði gerðir samningar um olíuflutninga
frá Ráðstjórnaríkjunum, án þess að tryggilega sé
frá því gengið, að þessar samþykktir verði virtar.
Ritstjóri þessa blaðs veit ekki til, að ísland hafi
tekið upp neitt mál á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna. En væri nú ekki vel til fallið, að hið íslenzka
eyríki hefði þar forustu um ályktun, sem að minnsta
kosti fæli í sér eindregna áskorun til aðildarríkj-
anna um að taka fyrir alla olíumengun sjávar. Það
mundi hafa verið sjálfur Kennedy Bandaríkjafor-
seti, sem lét sér þau orð um munn fara, að fram-
tíðarvonir mannkynsins urn lífsviðurværi hlytu að
grundvallast á þeim möguleikum, sem kvnnu að
feiast í hafdjúpunum.
REGLUR
um varnir gegn óhreinkun sjávar
af völdum olíu
1. gr.
Ákvæði alþjóðasamþykktar lrá 12. maí 1954, um
varnir gegn óhreinkun sjávar af völdum olíu, skulu
ná til allra íslenzkra skipa, að því er varðar losun
á olíu og olíumenguðum sjó, innan þeirra bann-
svæða, sem samþykktin ákveður.
2. gr.
Olíustöðvar í landi, smurstöðvar og verksmiðjur,
skulu sjá svo um, að frá þeim komist engin olía
eða olíumengaður vökvi til sjávar, hvorki beint né
óbeint, gegnum holræsi eða á annan slíkan hátt og
skulu ákvæði alþjóðasamþykktar þeirrar, sem uni
getur í 1. gr., gilda um olíustöðvar í landi, smur-
stöðvar, verksmiðjur og aðra slíka starfsemi, eftir
því sem við á.
3. gr.
Skipaskoðunarstjóri hefur eftirlit nteð frarn-
kvæmd reglna þessara og skal hann hafa sarnráð við
olíufélög, skipafélög, samtök iðnrekenda, hafnaryf-
irvöld, Dýraverndunarsamband íslands og Náttúru-
verndarráð um ráðstafanir til að lyrirbyggja
óhreinkun sjávar af völdum olíu og framkvæmd
reglna um slík efni, eftir því sem ástæða Jjykir til.
4. gr.
Brot gegn þessurn reglurn varða sektum, nema
þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum ákvæðum.
5. gr.
Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Reglur Jjessar eru settar samkvæmt 3. gr. laga nr.
101 28. desember 1961, um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til að staðfesta fyrir íslands hönd alþjóðasam-
Jjykkt um að lyrirbyggja óhreinkun sjávar af völd-
um olíu og setja reglur um frekari varnir gegn
slíkri óhreinkun sjávarins, og birtist til eftirbreytni
öllum Jjeim, sem hlut eiga að rnáli.
Samgöngumálaráðuneytið, 30. októbef 1964.
Emil Jórisson.
Brynjólfur Ingóltsson.
Þó að 5 mánuðir séu liðnir frá staðfestingu þessarar
reglugerðar, birtist hún ekki fyrr ett í síðasta hefti Stjórn-
artíðinda. G. G. H.
DÝRAVERNDARINN
23