Dýraverndarinn - 01.12.1972, Blaðsíða 7
Einn og
yfirgef-
inn í stór-
borginni
Umkomuleysið leynir sér ekki í svip kundsins á mynd-
inni, enda er hann kominn á flceking. Dýravinur fann hann
á förnum vegi, en eigandinn vildi af einhverjum orsökmn
losna við hann. Hann valdi þá leið að aka hundinum í
annað og ókunnugt hverfi stórhorgarinnar og skyldi hund-
inn þar eftir.
En lífið hjá flcekingshundum er erfitt í stórborgunum,
því samkeppnin um lífsgceðin er hörð, því heimilis-
lausir hundar og kettir eru margir og því margir um hvern
matarbita, sem til fellur.
Þessi hundur sem myndin er af var hins vegar heppinn,
því myndatökumaðurinn, sem einnig er mikill djravinur,
tók hundinn að sér.
skilja það þannig heldur aðeins benda á þessi atriði.
Hvað viðkemur friðun landssvæða er allt öðruvísi
farið. Það er fyrst og fremst gert í þeim tilgangi að
forða eyðingu og spjöllum á landi með þeim stórvirku
tækjum er vér höfum yfir að ráða nú á dögum. Hvað
við kemur okkur Islendingum þá er það aðkallandi að
líta á landið í heild sem verndarsvæði og koma í veg
fyrir allar þær eyðileggingar sem verða annaðhvort af
manna eða náttúrunnar völdum. Við getum gert stórt
og mikið átak hvað viðvíkur verndun landsins. Til
dæmis er það alkunn staðreynd að gróðurlandið er að
blása á haf út og ef ekkert verður að gert er ekki gott í
efni fyrir afkomendur okkar er taka við þessu landi.
Þetta er þó ekki það mikið vandamál enn sem komið
er að ekki sé hægt að stöðva þessa þróun og snúa henni
við. Til er félagsskapur er nefnist Landvernd og hefur
bæði yfir flugvélum og flugmönnum að ráða. En sá
styrkur sem hann fær hjá hinu opinbera nægir ekki til
kaupa á grasfræi eða áburði nema að litlu magni. Hver
hugsandi maður getur því séð að ekki verður á unnið
með slíku hálfkáki og verður því að hafa eitthvað fjár-
magn ef árangur á að nást. Lauslega ályktað myndi
vera hægt að stöðva landfokið ef til dæmis hver skatt-
greiðandi þessa lands vildi láta af hendi fé þannig að
hægt væri að kaupa það magn af fræjum og áburði er
með þyrfti og hamla þannig við því að gróðurlendi
þessa lands eyðist að fullu. Ef fólk það er byggir þetta
land sameinast til varnar sameiginlegum fjandmanni
lands og þjóðar er ég viss um að við getum skilað þessu
fagra landi voru enn fegurra til afkomenda vorra.
Sólmundur Einarsson.
DÝRAVERNDARINN
95