Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1972, Blaðsíða 16

Dýraverndarinn - 01.12.1972, Blaðsíða 16
Búfjárhald og búfjársjúkdómar á Islandi Kafli sá sem hér birtist í lauslegri þýSingu, er tek- inn úr alllangri ritgerð eftir Snorra Jónsson, dýralækni. Ritgerðin kom út í danska dýralæknaritinu Tidskrift for Veterinœrer árið 1879■ Höfundurinn, Snorri Jónsson, var Austfirðingur, fæddur í Papey 27. iúní 1844- Snorri var tekinn í Dýralæknaskólann í Kaupmannahöfn 1865 og lauk prófi þaðan 1870. Var hann skipaður dýralœknir Suð- uramtsins og gegndi því embætti til ársins 1874, er hans var ekki talin þörf lengur. Pluttist hann þá aust- ur i Papey og bjó þar til æviloka, en Snorri dó 4- nóvember 1879. Eftir Snorra liggja allmargar grein- ar um búfjársjúkdóma, einkum fjárkláðann. Aður hafði einn Islendingur, Teitur Finnbogason, lokið dýralæknisprófi, árið 1833, og er á hann minnzt í þessum kafla. Grein þessi bregður upp allskýrri mynd af aðbúð hrossa hér á landi fyrir nær hundrað árum síðan. En það ber að hafa í huga, að í þeirri hörðu lífsbaráttu sem þjóðin háði, var engu hlíft, hvorki mönnum né málleysingjum. Kvefpest eða slímhimnubólga í öndunarfærum, sem eru svo algengir meðal hesta í norðlægum löndum Evrópu, eru sjaldgæfir meðal íslenzku hestanna. Sú slæma meðferð, sem hestarnir fá yfirleitt, gerir þá auðvitað einnig harðgerari og síður móttækilega fyrir áhrifum veðurfarsins. Hvorki hrossakvef (snívi), hálseitlabólga né háls- bólgukennd hálsmein hafa nokkru sinni sézt hér. Slíkt má álíta, að sé sterk sönnun þess, að þessir sjúkdómar kvikni ekki af sjálfu sér, þar eð það er varla líklegt, að aðstæðurnar hérna geri hestana ómóttækilega fyrir slíkum sjúkdómum. Miltisdrep (miltisbrandur) er eini smitandi sjúkdóm- urinn að því er ég veit bezt, sem fram hefur komið meðal íslenzkra hesta. Hann kom fram sem farsótt í nágrenni Reykjavíkur í nóvember árið 1870 sem milt- isbruni. Annars hefur hann aðeins komið fram sem einstök tilfelli. I Tímariti dýralækna (Tidsskr. for Vet.) árið 1874 er stutt lýsing á þessu sjúkdómsfyrirbrigði á Islandi. Heysótt er mjög algengur sjúkdómur meðla reið- hesta. Það 'er astmasjúkdómur, sem orsakast í flestum tilfellum af lungnaþembu. Orðið heysótt er dregið af því, að sjúkdómurinn kemur aðeins fram, þegar hest- urinn er á húsi, einkum þegar hann er fóðraður á mygluðu eða illa þurrkuðu heyi. Sé heyið bleytt, á hesturinn ekki eins erfitt um andardrátt. Og því heldur fólk almennt, en ranglega, að slíkt hafi áhrif á sjálfan sjúkdóminn. Flestir hrossasjúkdómar eru kallaðir einu nafni „hrossasótt", og er þá næstum alltaf átt við iðrakveisu. Þessi sjúkdómur er einnig fremur tíður hjá hestunum. Einkum er sandsótt mjög algeng sums staðar. I hesti einum, sem ég sá deyja úr þessum sjúkdómi, var stór- langinn alveg úttroðinn af sandi. Eg hef ekki haft tæki- færi til þess að rannsaka, hvort ormagúlpur sé í tengsl- um við iðrakveisuna hér á landi. Ormar eru álitnir vera fremur tíðir í folöldum og ungum hestum, þótt óvíst sé, um hvaða tegundir er að ræða, og almenningur hreinsar þá af ormunum með því að gefa þeim mikið af gamalli sýru. Eg minnist þess frá námsárum mínum, að prófessor Bagge varaði okkur oft við því að gefa íslenzkum hestum liljulyf (aloe), þar eð það væri reynsla hans, að þeir þyldu ekki það lyf og fengju oft þarmabólgu af slíkri inngjöf. Eftir heimkomu mína til Islands var ég því í fyrstu mjög varkár, hvað snerti notkun slíks lyfs við hrossasjúkdómum, en síðar hef ég alltaf gefið það, þegar um þarmateppu hefur verið að ræða, jafn- vel 30 gramma skammta, ásamt glaubersalti, án þess að slíkt hafi haft nokkur skaðvænleg áhrif. Hrossa- eigendur hafa einnig tilkynnt mér, að þeir hafi gefið þessum litlu hestum jafnvel stundum tvöfalt stærri skammt af lyfi þessu, án þess að þeir hafi haft nokkuð illt af því. Þær gerbreytm aðstæður (meiri og ná- kvæmari umönnun og mildara loftslag), sem Islenzki hesturinn lifir við, eftir að hann er kominn til Dan- merkur, virðast því gera hann viðkvæmari. 104 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.