Dýraverndarinn - 01.12.1972, Qupperneq 13
endurprenta nokkuð af þeim kortum, sem móðir mín
gaf út og sjálfir gefið út þrjú. Tvö þeirra eru með
myndum efir Höskuld Björnsson og eitt með sól-
skríkjumynd eftir Eggert Guðmundsson. Hinn síðar-
nefndi hefur nú málað fagra mynd af lítilli stúlku,
sem er að gefa snjótittlingum, og gefið hana sjóðnum
til þess að prýða með jólakortið í ár. Fyrri myndina
gaf hann einnig og stöndum við í mikilli þakkarskuld
við hann fyrir það. Sjálfsagt er að geta þess hér, að
þeir listamenn, sem gert hafa myndirnar á eldri kort-
unum munu einnig hafa gert það endurgjaldslaust til
styrktar sjóðnum. Þeir eru nú allir látnir. Það voru
auk Höskuldar þeir Jóhannes Kjarval og Guðmundur
Einarsson frá Miðdal. Þökk sé þeim fyrir það.
Þótt dálítið sé til enn af öllum kortum sjóðsins gef-
um við nú út tvö. Annað með mynd Eggerts en hitt
níeð mynd af styttu föður míns á Miklatúni.
Það hefur reynst erfiðleikum bundið að fá hentugt
fuglafóður. Efni sjóðsins hafa því miður ekki leyft
nein stórkaup. Við höfum sent skólum úti á landi
20—-30 sekki á ári. Auk þess höfum við látið kunn-
ingja og aðra, sem þess hafa óskað, fá dálítið af fóðri,
meðan byrgðir hafa endst.
Við vonum að sjóðurinn eflist svo mikið í fram-
tíðinni að hann verði þess megnugur að geta gefið öll-
um, sem þess óska, eins mikið af korni og þeir þurfa
á að halda.
Eg vil að lokum hvetja fólk til þess að gefa fuglun-
um. Anægjan af því að horfa á þá borða margborgar
fyrirhöfnina við að gefa þeim.
I skammdeginu er best að gefa strax og birtir af
degi og þeir, sem kött eiga þurfa að gæta þess að hann
sleppi ekki út, meðan á máltíð fuglanna stendur. Ef
hægt er að koma því við, er ákjósanlegast að dreifa
fuglamatnum á húsþak eða þak á bílskúr, þar sem
kisa síður nær til fuglanna.
I kvæðinu „Vetur” segir Þorsteinn við þann sem
gefur fuglunum
„Þá sjer hann vinur sælustund
er saklaus þolir pínu,
og öðrum hörð mun linast lund
af líknarverki þínu,
og máske einhver muni þjer
og manndyggð launi slíka. —
Jeg veit, hvað svaungum vetur er
þú veist það kannske líka."
Erlingur Þorsteinsson
s|m| j |ö|r
á brauðið í 1ba.lEstii.rinn
ápönnuna
Osta-og smjörsalan s.f
DÝRAVERNDARINN
101