Dýraverndarinn - 01.12.1972, Síða 19
Þögul
vinátta
reiðhest að ræða, sem hýstur er að staðaldri, og aðeins
þeir efnaðri hafa reiðhesta. Aðrir hestar verða að sjá
um sig að vetrinum, eftir því sem þeir geta. Þeir eru
aðeins hýstir, þegar snjór og óveður gerir þeim alveg
ómögulegt að ná sér í nokkra næringu úti við.
Samkvæmt opinberum skýrslum voru upp undir
366.000 kindur, 19.000 nautgripir og 30.000 hestar á
íslandi árið 1871. Þá er þeim aðeins gefinn hinn allra-
versti ruddi. Afleiðingin er sú, að það er ekki fyrr en
í júnímánuði, að hestarnir hafa náð svo miklum,
þrótti aftur, að hægt sé að byrja að nota þá. Jafn-
vel í Reykjavík, höfuðborg landsins, sér maður á vetri
hverjum marga hesta, sem reika um göturnar og niðri
í fjöru án þess að koma nokkru sinni undir þak, og
jafnvel ekki heldur, þegar veðurhörkur og þykkar
fannir, sem þekja jörðina, gera þeim ómögulegt að ná
DYRAVERNDARINN
107