Dýraverndarinn - 01.12.1972, Blaðsíða 21
AÐALFUIM DUR
S.D.f.
Aðalfundur Sambands Dýraverndunarfélaga íslands
(S. D. I.) var baldinn í Skiphóli í Hafnarfirði 3. des-
ember s. I. Þar eð mik.lar deilur urðu á fundinum og
í framhaldi af því talsverðar breytingar á stjórn, sem
hefur í beinu framhaldi valdið stefnubreytingu sam-
bandsins varðandi hundaeldi í Reykjavík, þykir rétt
að birta fundargerð aðalfundarins, enda hefur slíkt
yfirleitt tíðkast áður. Ritstj.
Fundurinn var settur af formanni samtakanna, ÞórSi
Þórðarsyni. Kjörbréfanefnd athugaði kjörbréf og voru
þau samþykkt. Formaðurinn las síðan upp skýrslu um
störf félagsins á liðnu starfsári, minntist m. a. á að
vinna þyrfti betur að útbreiðslu Dýraverndarans.
Fundarstjóri var kjörinn Þórður Þórðarson en fund-
arritari Guðmundur Hannesson.
Að lokinni skýrslu formanns tók til máls Þorsteinn
Einarsson f. h. Fuglafriðunarnefndar. Rakti hann störf
þessarar nefndar og kvað von á skriflegri skýrslu frá
nefndinni. Fuglafriðunarnefndin hefur afskipti af öllu
varðandi rannsóknir og annað það er varðar fugla,
svo sem myndatökur á viðkvæmum fuglum o. s. frv.
Hilmar Norðfjörð las síðan upp reikninga og fjár-
hag samtakanna og gerði grein fyrir fjármálum Dýra-
verndarans. Gjaldkeri taldi að gera yrði átak til að fá
fleiri kaupendur að Dýraverndaranum og kom hann
með ýmsar tillögur í því sambandi. Tveir látnir vel-
unnarar dýraverndunar arfleiddu samtökin að eignum
um sínum á árinu, en það voru Sigurður Sigurðsson frá
Halldórsstöðum og Guðbrandur Thorlacius, Kalastöð-
um, Innri Akraneshreppi.
Næstur talaði formaður Hundavinafélags íslands
og gagnrýndi störf og skýrslu samtakanna, ársskýrslan
ekki borin undir stjórn samtakanna. Fleira átaldi Jakob
í sambandi við skýrsluna, einnig að Þorsteinn Einars-
son hefði borið sér ósannindi á brýn í sambandi við
skýrslugerðir til erlendra dýraverndunarfélaga. Jakob
gagnrýndi einnig skýrslu félagsins frá fyrra ári í sam-
bandi við hundalógun á þremur síðustu mánuðum árs-
ins 1971 og rengdi hann að sú skýrsla væri rétt varð-
andi hundalógun á því ári.
Næst tók til máls Jórunn Sörensen og gerði athuga-
semd við skýrsluna þar sem talað væri um lög um
hundahald.
Olafur Á. Ólafsson talaði næstur og minntist á að
Guðbrandur Thorlacíus hefði arfleitt félagið og hversu
hjartfólgið mál dýravernd hefði verið honum. Hann
taldi að mikils virði væri ef Búnaðarsambandið gæti
stutt okkur á einhvern hátt í sambandi við dýravernd.
Valdimar Sörensen tók í sama streng og Ólafur.
Hann gerði fyrirspurn um hvort Sauðárkróksfélagið
væri ekki lifandi.
Jón Kr. Gunnarsson talaði næstur minntist á hunda-
málið og taldi að bein afstaða S. D. I. væri á móti sinni
skoðun. Hann taldi að hundamálið væri ekki lengur
dýraverndunarmál, heldur vandamál manna og hann
væri á móti beinni afstöðu fundarins.
Jón Guðmundsson minntist á að náttúruvernd og
dýravernd væru ofin saman á flestan hátt og minntist
aðallega á fugla í þessu sambandi og að herða þyrfti
eftirlit með skotmönnum.
Hugljúf Jónsdóttir talaði næst og sagði frá lífs-
reynslu sinni í sambandi við dýr, og sagði sögu af álft
í sumarbústaðalandi sínu, og einnig að hún ætti tvo
hunda.
Sigríður Pétursdóttir minntist á fugla í landi sínu
á Skeiðum og samtök bænda þar, að leifa ekki skytterí
í löndum sínum.
Þorsteinn Einarsson þakkaði samstöðu um fugla-
vernd og beindi síðan orðum sínum til Jakobs Jónas-
sonar og taldi að nokkur dráttur hefði orðið á að gera
full skil í sambandi við aðalfundinn frá í fyrra. Þor-
steinn taldi að Jakob hefði borið á sig álygar, sem
hann vildi fá frekari skýringu á.
Jakob Jónasson svaraði Jóni Kr. Gunnarssyni á
vingjarnlegan hátt, en mótmælti, að sú skoðun Jóns,
að hundamálið væri ekki dýraverndunarmál. Jakob
taldi öruggt, að Hundavinafélagið væri með hreinan
meirihluta í sambandinu. Hann svaraði síðan Þorsteini
nokkrum orðum í sambandi við aðalfundinn í fyrra
og skoraði á fundarmenn að samþykkja tillögu sem
borin mun verða fram í hundamálinu.
Sambandsþingið sátu að þessu sinni fulltrúar frá
eftirtöldum félögum: Dýraverndunarfélagi Kjósar-
hrepps, Hundaræktunarfélagi íslands, Dýraverndunar-
DÝRAVERNDARINN
109