Dýraverndarinn - 01.12.1972, Blaðsíða 29
þó títt sé rætt um að flækingsdýr af þessu tagi séu plág-
ur á höfuðborgarsvæðinu.
I nokkur skipti var á árinu kært eða farið fram á
að stjórnarmenn hefðu afskipti af dýrum, aðallega
hestum, á höfuðborgarsvæðinu. Lét stjórn S.D.I. kanna
aðstæður þegar þess var óskað. Ekki sáu eftirlitsmenn
S.D.I. ástæður til að kæra neitt umræddra tilfella.
Aberandi er að árekstrar verða gjarnan þar sem
dýrahald og mannabústaðir eru í sambýli.
Á árinu var kjörinn fulltrúi S.D.I. í fuglafriðunar-
nefnd og var Þorsteinn Einarsson endurkjörinn, en
hann hefur gegnt þessum starfa undanfarin ár. Ekki
liggja fyrir nein gögn um verkefni eða fundi þessarar
nefndar hjá S.D.Í.
Gerð var athugun á að endurreisa dýraverndunar-
félagið á Akureyri af hálfu S.D.I. en ekki hefur tekist
að fá fólk til að taka að sér forystuna, en eldri stjórn-
endur hafa ekki aðstæður til að taka upp þráðinn að
óbreyttu.
Nauðsyn ber til að koma á starfsemi dýraverndunar-
félaga víðar eins og t.d. á Austurlandi, þó ekki væri
nema vegna hinnar margumtöluðu hreindýrahjarðar.
Utflutningur hesta það sem af er árinu nemur um
800 hestum, en sú ánægjulega breyting hefur á orðið
að eingöngu h'efur verið um flutning í flugvélum að
ræða. Utflutningur hesta með skipum hefur undanfar-
in ár verið mjög gagnrýndur af dýraverndunarmönn-
um vegna þess hve oft á tíðum hefur farið illa um
hestana og komið hefur jafnvel fyrir að hestar hafa
drepizt. Stjórn S.D.I. fagnar þeirri breytingu sem á hef-
ur orðið.
Hvalveiði var heldur minni í ár en árin áður eða
466 en var í fyrra 5 54 hvalir. Hvalveiðimenn og ýmsir
vísindamenn einnig telja að minni veiði í ár eigi rætur
að rekja til erfiðara tíðarfars en ekki að stofninn hafi
DÝRAVERNDARINN
minnkað verulega, enda hafa hvalveiðar í Norðurhöf-
um farið mjög minnkandi. A alþjóðaráðstefnum dýra-
verndunar- og náttúruverndarmanna fer áróður gegn
hvalveiðum harðnandi, þar sem talið er að stórhvelum
fari yfirleitt fækkandi. A síðustu alþjóða hvalveiðiráð-
stefnunni lagðist stjórnskipaður fulltrúi Islands gegn
algjörri friðun.
Enn er mikið rætt um minkaeldið, þó minkaeldið
sé þegar orðið staðreynd. Deilt er mikið um minkaeld-
ið vegna rekstrarerfiðleikanna og einnig vegna þess
að af og til er minkabúunum borið á brýn að minkar
sleppi út. Minnst er á þessi tvö síðastnefndu mál þó
S.D.I. hafi ekki haft bein afskipti vegna þeirra.
Stjórn S.D.I. er sammála um að brýnt sé að efla
hvers konar starfsemi náttúruverndar og dýraverndar
í landinu. Vegna aukinnar tækni og aukinnar iðnvæð-
ingar er meiri hætta á alls konar slysum og óhöppum,
sem geta valdið óbætanlegum áföllum í náttúru lands-
ins og dýralífi.
Stjórn S.D.I. var þannig skipuð:
Þórður Þórðarson, formaður,
Jón Guðmundsson, varaformaður,
Hilmar Norðfjörð, gjaldkeri,
Jón Kr. Gunnarsson, ritari,
Jakob Jónasson,
Asgeir Hannes Eiríksson,
Gauti Hannesson.
Varamenn:
Gunnar Már Pétursson,
Erna Fríða Berg,
Skúli Sveinsson,
Lárus Sigurðsson,
Gunnlaugur Skúlason.
117
i