Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1972, Page 41

Dýraverndarinn - 01.12.1972, Page 41
Nýtízku hænsnarækt Eins og í flestum öðrum búskapargreinum, hefur orðið mikil þróun í hænsnarækt. Hænsnin vappa ekki lengur um á hlaðvarpanum í sveitinni, heldur er nú hænsnaræktin nær eingöngu rekin í stórum búum, sem eru nánast verksmiðjur, þar sem framleiðslutækin eru lifandi hænur. Eggin fara í rennur eða eins konar færiband og kornið kemur til dýranna með eins konar sjálffóðrara. I sumum þessara nýtízku hæsnabúa er hverri hænu ætlað eitt ferfet til umsvifa, það er að segja það eru fjórar hænur í hverjum kassa, sem er fjögur ferfet. Líður hænunum illa eða líður þeim vel? Því verður erfitt að svara, því þær þekkja ekki aðra tilveru. Hænsnin eru yfirleitt vel fóðruð, enda yrðu þær ekki arðbærar að öðrum kosti, og ef einhverjir sjúkdómar koma upp, þá er ráðið niðurlögum þeirra, ef þess er nokkur kostur. Þegar arðbærasta tímaskeiði hverrar hænu er lokið, þá fer hún í sláturhúsið, eins og flestar aðrar tegundir húsdýra. En spurningin er, hve langt má verksmiðjurekstur ganga í húsdýrahaldinu? Er dýraníðsla að ala hænsni í nýtízkubúi, eða er það ekki? að sjá það étið á morgnana, og alltaf hlakkaði hanr til að heyra til hennar á kvöldin, og sofnaði alltaf vært, þegar hann var búinn að fá að heyra naghljóðið. Og þennan vetur fann fólkið mikinn mun á því, hvað Darjan var glaðlegri og þó kveið hann því oft, að litla vinan hans í klefanum kynni að leggjast frá þegar vor- aði, og þó hún yrði kyrr þá gat hún þó ekki lifað nema fáein ár, og svo var allt tómt á eftir. En svo var það einn dag um vorið, að vikadrengur- ínn hans fann stálpað kið niðri í holu í hrakviðurs rigningu, húðblautt og kalt, svo að það hélt varla höfði. Engar geitur voru þar nærri, svo enginn vissi hver átti, og svo vafði drengurinn það inn í barm sinn og hljóp með það heim og hitti þar Darjan einan úti við lind. „Að þetta skyldi nú koma fyrir," hugsaði Darjan, „og níðingsverk væri að fara burt með aum- ingjann svona til reika," og drengurinn var svo hjart- ans glaður yfir fundinum. „Fáðu þér þá ílát og hlauptu svo fljótt sem þá getur eftir mjólk til hans Dúrans gamla og ef þú getur þagað yfir kiðinu og lætur engan mann vita neitt um þetta, þá skaltu fá að eiga það, eí það lifnar." Drengurinn var heldur ekki þungur á sér þegar hann þaut af stað, en Darjan lét kiðið inn á brjóstið á sér meðan hann beið eftir piltinum og gat þó ekki annað en verið að skoða kiðið. Það var huðna, einkar féleg og svartsokkótt og svo nauðalík Sokku gömlu, sem hann hafði leikið verst, og gat aldrei gleymt, að honum datt hún undir eins í hug, og nú lauk Sokka litla upp augunum í barmi hans, þar sem hann var kominn með hana heim í hlöðu. Hún var alveg hætt að skjálfa, og Darjan sat með hana þarna alveg eins og barn og hafði ekki augun af henni. Það var eins og hann geymdi þar dýrgrip og þó var hann nærri óstyrkur af óró, en lán var að enginn vissi það nema pilturinn og hann var dauðþagmælskur. Þegar mjólkin kom kveiktu þeir upp eld úti í hlöðunni og yljuðu mjólkina og bjuggu um Sokku litlu þar í hey- inu um kvöldið; en ekki vildi Darjan verða svefnsamt um nóttina og með sól þaut hann á fætur og út í hlöðu, en þegar hann lauk upp, stóð litla Sokka þar úti við dyr, sultarleg og falleg og jarmaði upp á hann með sínum skæra og mjóa kiðarómi og sjaldan hefur mað- DÝRAVERNDARINN 129

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.