Hugur - 01.01.1989, Side 51

Hugur - 01.01.1989, Side 51
HUGUR SIGURÐUR KRISTINSSON réttlæti og hina einstakt réttlæti. Hinu einstaka réttlæti skiptir Aristóteles enn í tvo hluta. Annars vegar réttlæti í skiptingu hvers kyns gæða (skiptaréttlæti) og hins vegar það réttlæti sem réttir hlut manna í viðskiptum af ýmsu tagi (viðskiptaréttlæti) (EN 1130b30-l 131a9). Skiptaréttlætið felst í því að hver fái hvorki meira né minna en hann á skilið. Að fá of mikið í sinn hlut er óréttlát breytni, en að fá of lítið er að fá óréttláta meðferð (EN 113 lb 17-20). Viðskiptaréttlætið fæsthins vegar ekki um verðleika manna (EN 1132a3), heldur sér það til þess að menn tapi hvorki né græði á viðskiptunum, hver fái í sinn hlut jafnvirði þess sem hann lætur af hendi. Hið einstaka réttlæti hlýtur að ríkja meðal sannra vina, þar sem það er hluti af því almenna og það almenna einkennir sanna vináttu, eins og áður sagði. í óeiginlegri vináttu, einkum þeirri sem kemst á vegna nytsemi, virðist Aristóteles hins vegar hugsa sér að hið einstaka réttlæti sé sá burðarás sem vin- áttan stendur eða fellur með. í þess konar vináttu meta menn hver annan eftir endurgjöldunum, en ekki eftir því hvers konar manneskjur þeir eru. Þegar þar við bætist að nytjavinum hættir stundum til ágirni (sbr. EN 8.13) verður ljóst, að hið einstaka réttlæti er það eina sem getur hindrað að vináttan verði að fjandskap. Við skulum nú segja alveg skilið við hið einstaka réttlæti og víkja þess í stað aftur að því sem ég nefndi almennt réttlæti. Það fólst í því að hlýða lögunum og breyta gagnvart náungan- um eins og dygðugur maður myndi gera. Þegar hefur koinið fram, að menn verða sannari vinir, eftir því sem fullkomnara réttlæti ríkir í samskiptum þeirra og einnig eftir því sem þeir eru dygðugri. Einnig hefur komið fram, að Aristóteles talar stundum um að í samfélaginu í heild geti ríkt vinátta. í ljósi þessa má nú spyrja, hvaöa hlutverki Aristóteles ætlar lögunum að gegna í að koma á sannari vináttu í samfélaginu. Lögin ala upp þegnana Höfuðkenning Aristótelesar um dygðina er sú, að hún sé lyndiseinkunn, sem mótist af þeirri breytni sem menn venja sig á. „Það skiptir því ekki litlu máli hvers konar venjur við 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.