Hugur - 01.01.1989, Page 61
HUGUR
ATLI HARÐARSON
kallar sífellt á „eitthvað blárra, eitthvað skýrra“ sem sam-
ræmist fyrirmyndum [Ideale] eða hugsjónum hennar um full-
komnun.
Það má undarlegt heita hvað kenningum Kants um hug-
sjónir eða fyrirmyndir skynseminnar og kröfur hennar um að
við fylgjum fordæmi þessa fullkomna manns hefur verið lítill
gaumur gefinn. Flestir sem skrifa um siðfræði hans láta sem
þeir hafi aldrei lesið kaflann hér að framan úr Gagnrýni
hreinnar skynsemi. Þetta er mikill skaði, því siðfræði Kants er
óskiljanleg nema með hliðsjón af kenningum hans um
skynsemina í þeirri bók.
Frægasta, og sennilega torskildasta, siðfræðirit Kants er
Grundvöllur að frumspeki siðferðisins. í þessu riti heldur hann
því meðal annars fram að siðferðilega röng breytni sé því
marki brennd að enginn geti viljað að forsendur [Maxime]
hennar verði að lögum sem allir fylgja. Þar segir:
Ég þarf enga sérstaka skarpskyggni til að sjá hvað ég þarf að
gera til að vilji minn [mein Wollen] sé góður. Þó ég hafi enga
reynslu af veraldarvafstri og sé ófær um að vera viðbúinn
hverju sem henda kann þá dugar mér að spyrja sjálfan mig:
Getur þú viljað að forsendur breytni þinnar verði að
almennum lögum? [Kannst du auch wollen, dass deine
Maxime ein allgemeines Gesetz werde?].2 3
Síðar í sömu bók segir Kant:
Sum verk eru með þeim ósköpum að ekki er einu sinni hægt,
mótsagnarlaust [ohne Widerspruch| að hugsa sér forsendur
[Maxime] þeirra sem almenn náttúrulög |allgemeines
Naturgesetz]; og því síður er hægt að vilja [wollenj að þær
verði að slíkum Iögum. I öðrum verkum rekumst við ekki á
þennan innri ómöguleika þó ómögulegt sé að vilja [wollen] að
forsendur þeirra fái algildi náttúrulaga [Allgemeinheit eines
Naturgesetzes], þvf slíkur vilji væri í mótsögn við sjálfan sig
[ein solcher Wille sich selbst widersprechen wúrde].2
Þetta og fleira sem Kant segir í Grundvelli að frumspeki
siðferðisins hefur oft verið túlkað svo að hann hafi talið að
2 Immanuel Kant:Grundvöllur að frumspeki siðferðisins [Grundlegung
zur Metaphysik der Sitten] IV, 403
3 Sama rit, IV, 424.
59
L